157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:07]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Ég ætla að byrja á að verja stuttum tíma í eðli málsins. Það er auðvitað erfitt að átta sig á því hvort þetta er einhvers lags yfirlæti eða aulagangur að nálgast málið með þeim hætti sem gert er. Málið kemur fram á föstudegi á blaðamannafundi. Því er dreift utan þingfundar og umræða hefst á mánudagsmorgni. Málið hafði ekki farið í samráðsgátt. Það hafði ekki verið kynnt fyrir utanríkismálanefnd eins og þingskapalög gera ráð fyrir. Það var ekki einu sinni á þingmálaskrá. Hér koma stjórnarliðar, stuðningsmenn þessa máls, hver um annan þveran og segja: Þetta er eitt af kjarnamálum ríkisstjórnarinnar og þetta lá fyrir í stjórnarsáttmála. En allt hitt klikkaði. Það er spurning í ljósi sögunnar hvort um er að ræða meiri skammt af yfirlæti eða aulagangi.

Svo tekur nú steininn úr þegar hæstv. forsætisráðherra ætlar ekki einu sinni að mæta hér og sýna þinginu þá virðingu að fara í eins og eina ræðu til að tala um þetta kjarnamál ríkisstjórnarinnar eins og því er lýst, ekki eina. Það skiptir nefnilega máli að almenningur sem fylgist með og við þingmenn og fulltrúar utanríkismálanefndar átti sig m.a. á því hvað hefur breyst frá því að hæstv. forsætisráðherra lýsti því hér haustið 2024 að þetta mál yrði ekki á dagskrá með þeim hætti sem verið hafði hjá Samfylkingunni á fyrri stigum. Það myndi kljúfa þjóðina og það væru næg önnur verkefni að líta til en samningaviðræðna við Evrópusambandið. Ef eitthvað er þá hefur staðan í efnahagsmálum versnað umtalsvert síðan þá, þannig að það er ekki hægt að líta öðruvísi á en svo að þetta sé einhvers lags uppgjöf gagnvart þeim vandamálum sem ríkisstjórnin stendur frammi fyrir hvað efnahagsmálin varðar.

Þingsályktunartillagan sem slík er auðvitað mikið þunnildi og eiginlega alveg ótrúlega rýr og 6. kaflinn, sem er um áhrifamatið sem ég er sérstakur áhugamaður um í frumvörpum og þingmálum ríkisstjórna, er með því aumasta sem ég hef séð. Það mætti hafa mörg orð varðandi skort á „af hverju“ og samningsmarkmiðum en ég ætla að spara mér þann tíma og vísa til ræðu hv. þm. Sjálfstæðisflokksins, Hildar Sverrisdóttur, rétt áðan, sem var prýðisgóð í þeim efnum og rammaði það vel inn. Það er auðvitað með miklum ólíkindum að í engu sé vikið að því hver kostnaður af málinu verður, bæði beinn kostnaður og afleiddur, því það hefur auðvitað veruleg áhrif — um leið og er búið að segja já í þessari atkvæðagreiðslu, verði það niðurstaðan í lok ágúst, þá fer af stað ferli, rétt eins og þegar Jóhanna, Steingrímur og Össur stóðu í þessu brasi 2011–2013. Þá fer stjórnsýslan á fullt í að aðlaga sig Evrópukröfunum og því fylgir umtalsverður kostnaður og óþægindi og menn sinna ekki öðru á meðan. Þetta er það sem blasir við þegar svo miklu máli skiptir að nýta þá krafta sem til eru í stjórnsýslunni til að einfalda regluverk og bæta rekstrarskilyrði fyrirtækja og fjölskyldna í landinu.

Það er alveg makalaust að þingmeirihluti sé ekki til staðar fyrir málinu og samt verði því ýtt úr vör með þeim hætti sem hér blasir við. Eru allir búnir að gleyma vandræðunum sem ríkisstjórn Steingríms og Jóhönnu kom sér í? Flokkarnir settu í framhaldinu, ef ég man rétt, Íslandsmet ef ekki Evrópumet í fylgistapi á milli kosninga. Það var auðvitað nokkru síðar sem Vinstri grænir duttu út af þingi en kosningarnar eftir þetta gönuhlaup Jóhönnu, Steingríms og Össurar forðum kostuðu flokkana báða mikið fylgi.

Hvað varðar samningsmarkmiðin, svo ég komi stuttlega inn á þau þótt ég vísi í meginatriðum í ræðu Hildar Sverrisdóttur hérna áðan, þá er það þannig eins og staðan er núna, í ljósi þess að samningsmarkmið núverandi stjórnvalda eru í engu ávörpuð, að við getum ekki litið öðruvísi á en að samningsmarkmið gömlu stjórnarinnar, fyrstu vinstri stjórnarinnar, Jóhönnu, Steingríms og Össurar, séu þau sem notast sé við. Það er auðvitað kapítuli út af fyrir sig að sú staða blasi við okkur nú um stundir. Ef það á að halda áfram á þeim grunni, eins og segir hér, „framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu“, framhald á viðræðunum sem hófust 2011, þá er ekki öðru til að dreifa en þeirri nálgun sem 27 aðildarríki Evrópusambandsins greiddu atkvæði um 2011, ef ég man rétt. Það hafa ýmsir komið upp hér og brigslað m.a. formanni Miðflokksins og fleirum um að hafa haft einhvern veginn af þjóðinni það tækifæri að koma þessu máli áfram árin 2013–2016. Heyrðu, það var Össur Skarphéðinsson, þáverandi hæstv. utanríkisráðherra, sem frestaði viðræðum við ESB og hætti við aðildarferlið. 2013 var ekkert annað en staðfesting á orðnum hlut, það sem þá var gert, þannig að menn verða að horfa á þetta eins og það raunverulega liggur. Það verður að halda því líka til haga að Össur Skarphéðinsson sem utanríkisráðherra þess tíma gafst upp án þess að spyrja þingið, hvað þá þjóðina.

Síðan verður auðvitað, til að ljúka þessum kafla um eðli málsins, að hafa nokkur orð um áhrifin frá 2004. Því er haldið fram af stjórnarliðum að það séu meiri háttar varanlegar undanþágur að fá af því að samningsstaða Íslands hafi styrkst svo mikið frá því að Jóhanna og Steingrímur fóru í sína vegferð á sínum tíma. Staðan er sú að árið 2004 var gerð meiri háttar breyting á því með hvaða hætti Evrópusambandið nálgaðist þau lönd sem sækja um aðild eftir þann tíma. Þá komu inn tíu þjóðir, flestar svona heldur krambúleraðar efnahagslega, og frá þeim tíma hafa menn ekki verið að vinna með varanlegar undanþágur. Þetta sagði ?tefan Füle á sínum tíma. Þetta segir í bæklingum Evrópusambandsins um stækkunarferlið. Þetta segir Heather Grabbe sérfræðingur, í fréttum Ríkisútvarpsins síðastliðinn föstudag, og þetta segja allir sem þekkja til. Þeir mega eiga það, kontóristarnir í Brussel, þeir eru ekki í neinum feluleik með þetta þó að íslenskir áhugamenn um þetta verkefni reyni að þvæla þetta og fela eins og nokkur kostur er.

Það er svo skrýtið að menn leggi allt undir til að komast í gegnum þessa atkvæðagreiðslu í ágúst, leggi allt undir til að ná að plata íslenska þjóð fram yfir þann tímapunkt þannig að menn átti sig ekki á því augljósa; að það eru ekki neinar varanlegar undanþágur að sækja. Það er auðvitað sérstakt afrek að Evrópusambandið sjálft sé ósammála því að um samningaviðræður sé að ræða. Maður hefði haldið að það dygði til þess að fyrirsvarsmenn þessa máls myndu leggja þeim rökum hér í umræðunni, en það verður að bíða eftir því um sinn.

Síðan segir hæstv. utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, að hún muni aldrei skrifa undir samning þar sem gefin eru eftir yfirráð yfir sjávarauðlindinni. Hæstv. forsætisráðherra talar á svipuðum nótum. En hvað gerðist fyrir ári síðan? Á kosninganótt vék Viðreisn frá því loforði að hækka ekki skatta á fólk og fyrirtæki. Á kosninganótt hvarf Samfylkingin frá því að eiga í góðu samtali við atvinnulíf, sérstaklega sjávarútveg, um það sem fram undan yrði. Á kosninganótt hvarf Flokkur fólksins frá aðaláherslu á mál sitt um 450.000 kr. á mánuði, skatta- og skerðingarlaust. Allir þessir flokkar köstuðu sínum helstu kosningamálum fyrir róða til þess að geta sameinast um það að reyna að draga þjóðina inn í Evrópusambandið sem þau höfðu svo rækilega reynt að fela í aðdraganda kosninganna og gert mikið úr að þau sjónarmið væru ekki lengur í forgrunni.

Það er auðvitað mjög margt sem ég á eftir að koma inn á hér og þarf að koma inn á í seinni ræðu minni. En staðreyndin er sú, svo ég reyni að ramma þetta inn hér í lokin, að það hefur alltaf verið staðan að við höfum ekkert inn í brennandi hús Evrópusambandsins að gera. Hagsmunum Íslands er betur borgið utan sambandsins en innan þess. Við höfum aðgang að mörkuðum í gegnum EES-samninginn og hann hefur virkað býsna vel fyrir okkur þó að okkur hafi misfarist að nýta þær undanþágur og það svigrúm sem samningurinn beinlínis skrifar út og getur orðið okkur til enn meira gagns heldur en þegar er. Þetta er það sem við eigum að einblína á. Við eigum að hætta við þessa vegferð. Hún verður til ógagns, mun kljúfa þjóðina og það er ekki það sem við þurfum á að halda nú um stundir þegar efnahagsmálin eru með þeim hætti sem nú er, þar sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur virðist hafa notað (Forseti hringir.) sleggjuna á heimilin og fyrirtækin á endanum í staðinn fyrir á verðbólgu og vexti. (Forseti hringir.) Reynum að setja orkuna í það sem mestu skiptir fyrir fólkið í landinu. Þetta er ekki það.