157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:22]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni kærlega fyrir hans svar og get svo sannarlega tekið undir það að a.m.k. þyrftum við ekki að gera stjórnarskrárbreytingar og afsala okkur hluta af fullveldi landsins til að ganga í húsfélag Dúfnahóla 10. En þar sem ég hef bara nokkrar sekúndur þá langar mig að fá hv. þingmann aðeins til að reifa það sem hefur vakið athygli. Hæstv. forsætisráðherra fór strax úr salnum þegar umræður byrjuðu og ætlaði ekki að taka þátt og hefur ekki tekið þátt í einu stærsta máli ríkisstjórnarinnar, treysti sér ekki til að mæta formönnum stjórnarandstöðuflokkanna í Silfrinu í gær. Fer að sjálfsögðu í eitthvert drottningarviðtal í Ríkisútvarpinu en þar segir hæstv. ráðherra að hún ætli að selja landið fokdýrt. Mig langar að fá hv. þingmann til að koma hér upp og svara því: Hvað finnst honum um í rauninni þennan hugsunarhátt, að við séum land til sölu en við séum fokdýrt land til sölu?