157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:23]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Einhvern veginn kemur fyrst upp í hugann laglína Ríó tríósins, landið fýkur burt, þegar spurt er um orð forsætisráðherra fyrr í dag þess efnis að hæstv. ráðherra muni selja landið rándýrt. Þetta er allt byggt á einhvern veginn þeim sama misskilningi að það geti með einhverjum hætti orðið landi og þjóð til gagns að fara í þessa vegferð núna þar sem menn finna sig í þeirri stöðu, verði niðurstaðan sú að meiri hluti landsmanna segi já í lok ágúst, þá strax verði tekið upp aftur aðlögunarferli að regluverki og stofnanakerfi Evrópusambandsins. Þetta er meira af því sama. Það verður öllu tjaldað til til þess að fela kjarnaatriðin í þessu máli. Það verður öllu tjaldað til til þess að umræðan snúist um annað en það hvað felst í því að ganga í Evrópusambandið, sem er eina spurningin sem skiptir máli.