157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:27]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þetta er allt tóm þvæla, því miður, umræðan sem hér er viðhöfð varðandi varanlegar undanþágur. Það sem ?tefan Füle sagði á blaðamannafundi með Össuri forðum stendur og enginn hefur borið brigður á að það sem Heather Grabbe sagði í viðtali á föstudaginn hafi verið rétt. Þetta stendur í bæklingum Evrópusambandsins um stækkunarferli. Ég held að það blasi við að einhverjir stjórnarliðar eru farnir að reka niður varnagla fyrir sjálfa sig að grípa til síðar. Ég heyrði hv. þm. Guðmund Ara Sigurjónsson, þingflokksformann Samfylkingarinnar, segja hér í gær, með leyfi forseta:

„Hér er enginn þingmaður sem getur sagt okkur hversu háan hluta af uppsjávaraflanum sem við höfum í dag við munum hafa ef við göngum inn í Evrópusambandið. Þetta er samningsatriði.“

Þetta er ekki það sem ráðherrarnir, utanríkisráðherra og forsætisráðherra, segja, bara alls ekki. En þarna virðist þingflokksformaður Samfylkingarinnar vera búinn að átta sig á að þetta verður ekki með þeim hætti sem ráðherrarnir og þeir sem í blindni halda þessari möntru gangandi halda fram. Þetta verður ekki þannig. Mér hefur þótt þessi villandi umræða um varanlegar undanþágur vera svona næstum því til skammar því að Evrópusambandið er alveg skýrt um þetta. Það varð grundvallarbreyting á því árið 2010 þegar tíu þjóðir gengu inn með hvaða hætti undanþágurnar voru aðgengilegar. Þá verður til ný meginregla sem er sú að þær þjóðir sem sækja um eftir þann tíma taka upp grunnreglur Evrópusambandsins í heild sinni eins og þær eru. Ég bara hvet þá sem tönnlast á þessu að skoða með opnum augum með hvaða hætti Evrópusambandið sjálft talar um þetta. Þeir mega alveg eiga það, þeir eru upp til hópa heiðarlegir kontóristarnir þar (Forseti hringir.) og segja hlutina eins og þeir eru hvað þetta varðar. Það eru (Forseti hringir.) engar varanlegar undanþágur frá regluverki Evrópusambandsins.