157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[22:32]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir ágætisræðu en mig langar að beina athyglinni, þar sem hv. þingmaður er töluvert reynslumikill hér á þinginu, að fólkinu sem heima situr og er að fylgjast með á skjánum. Það heyrir einn segja eitt og annan segja hitt og það hljómar allt mjög vel. Stjórnarliðar segja eitt og stjórnarandstaðan annað. Er eitthvað sérstakt sem menn ættu að fylgjast með í orðræðunni annað en að reyna að vega og meta þau rök sem koma fram hér í ræðustólnum?

Sjálfur hef ég, eins og margir aðrir, fjallað um þessar varanlegu ófrávíkjanlegu undanþágur sem ég held að öll þjóðin vilji sameinast um og meira að segja Viðreisn. Þrátt fyrir að sá flokkur sé með yfirlýst markmið um að ganga í Evrópusambandið eru töluvert margir þingmenn Viðreisnar sem segja að þeir muni ekki skrifa undir samning ef ákveðin atriði, sem eru svolítið óljós stundum, eru ekki inni í þeim samningi, þannig að menn eru strax aðeins farnir að setja hælana í. En spurningin er líka, auk hinnar fyrrnefndu, fyrir áhorfendurna því það er alveg flókið að fylgjast með þessum umræðum — kannski getur hv. þingmaður svarað þessu og kannski ekki — með þessar varanlegu undanþágur. Ekkert umsóknarríki hefur fengið varanlegar undanþágur frá yfirstjórn ESB. Það er staðan. Ekkert. Ég kem aðeins seinna inn á það sem menn kalla undanþágur, ákveðnar sérlausnir sem er hægt að trompa með einu pennastriki. Ég spyr hvort hv. þingmaður geti ávarpað þetta.