þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ágætissvar við andsvari mínu og langar aðeins að halda áfram með það sem ég nefndi hér með pennastrikið áðan. Í örfáum tilfellum hefur verið hægt að semja um eitthvað sem kallast sérlausnir eða eitthvað slíkt. Ég hef það sterklega á tilfinningunni, og hef heyrt það í ræðum þingmanna stjórnarmeirihlutans hér, að menn taki því sem einhvers konar undanþágum sem eru ekki varanlegar undanþágur. Ég get nefnt sænska snusið og surströmming sem Svíar éta, en það er sýrð síld sem er ekki sérlega góð á bragðið. Þeir hafa fengið undanþágur frá þessu en það eru ekki varanlegar undanþágur. Þess vegna spyr ég hv. þingmann hvort hann telji ekki mikilvægt að þessi misskilningur verði leiðréttur þannig að almenningur átti sig á því að það sem mjög margir hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans tala um sem varanlegar undanþágur eru svokallaðar sérlausnir eða eitthvað slíkt sem halda í einhvern tíma. Írar urðu t.d. harkalega varir við það en þeir voru með ákveðinn hlutdeildarkvóta sem var síðan bara skorinn niður á einu bretti af því að stóru þjóðirnar vildu það. (Forseti hringir.) Þeir héldu kannski að þeir væru með einhverjar varanlegar undanþágur en voru það í rauninni ekki.