þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Já, það var auðvitað bölvað fyrir aðildarsinna að fá þessar fréttir frá Írlandi, en þær eru bara eins og þær eru. En talandi um pennastrik sem getur afmáð undanþágur eða reglu sem unnið er eftir, þá er reglan um hlutfallslegan stöðugleika í sjávarútvegi oft nefnd, að hún sé trygging Íslendinga fyrir því að njóta þeirra réttinda að veiða fiskinn þó að kvótanum verði úthlutað frá Brussel. Staðreyndin er sú að þeirri reglu er hægt að breyta með einu pennastriki, kannski 27, en þeirri reglu er hægt að breyta.
Misskilningurinn sem er mikilvægast að leiðrétta er annars vegar sá er varðar umræðuna um varanlegar undanþágur og hins vegar finnst mér mjög mikilvægt að við náum einhvern veginn að tryggja að almenningur átti sig á að um leið og niðurstaðan verður já, verði það niðurstaðan í lok ágúst, þá fer af stað ferli. Það verður ekkert í einhverju stoppi í gegnum langar (Forseti hringir.) samningaviðræður og svo allt í einu verði kosið og þá fari allt af stað. Það fer allt af stað hvað áframhaldandi aðlögun íslensks regluverks, samfélags, laga, stofnanakerfis og framfylgdar varðar, það fer allt af stað strax. Það þarf að auðvelda almenningi að glöggva sig á þessu.