þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Það er svolítið sérstakt að taka þessa umræðu vegna þess að málið snýst um það að hér vilja menn að Ísland fari í Evrópusambandið. Nú er oft gott að kanna það, finna það á útlendingum, þegar maður er búinn að taka einhverja umræðu sem er skrýtin á Íslandi, hvernig þeir bregðast við. Ég vil hvetja alla til að prófa að reyna að útskýra það fyrir útlendingi, sérstaklega Evrópubúa, að það sé til ríkisstjórn í landinu sem ætli að sækja um aðild að Evrópusambandinu til að kanna hvað er í boði. Prófið þetta og talið svo mig. Þetta er álíka og að reyna að útskýra fyrir útlendingi að við bönnuðum bjór. Hann mun alltaf leiðrétta þig og segja: Þú meinar ekki bjór, bjór var ekki bannaður, þið hljótið að hafa bannað sterkt áfengi. Maður segir: Nei, við bönnuðum bjór. Af hverju? Það voru margir sem héldu að það væri hættulegt. Ha? Þá fer maður að spyrja: Þekkir þú Steingrím J. Sigfússon? En það kannski hjálpar ekki mikið.
Virðulegi forseti. Það er kennt hvað felst í því að vera í Evrópusambandinu. Það vita allir hvað felst í að vera í Evrópusambandinu nema stjórnarliðar á Íslandi. Þeir segja í fullri alvöru, virðulegi forseti, forystumenn ríkisstjórnarinnar, hæstv. forsætisráðherra: Það á ekkert að að ræða Evrópusambandið. Já, ég man að vísu ekki eftir forsætisráðherra sem hefur sagt við þjóðina hvað hún má ræða fyrr en þarna. Þetta er sami forsætisráðherra og segir núna: Þið þurfið ekki að hafa neinar áhyggjur. Ég mun selja landið fokdýrt.
Fyrirgefðu, virðulegi forseti, ég hef mjög miklar áhyggjur. Ég er búinn að þekkja fólk í nokkurn tíma, eiginlega bara frá því ég man eftir mér, og á mikið af samferðafólki sem hefur barist fyrir því frá því að það kom á fullorðinsár, byrjaði sem ungt fólk, að Ísland gangi í Evrópusambandið. Ég ber alveg virðingu fyrir því, ég er bara hjartanlega ósammála því. En á síðustu árum og áratugum þá er þetta baráttufólk, sem núna eru oft álitsgjafar eða í stjórnmálum, búið að gleyma því hvað felst í því að vera í Evrópusambandinu. Það fór frá því að reyna að sannfæra mig og aðra að það væri eina vitið og okkar siðferðilega skylda að ganga í Evrópusambandið, fór úr því, yfir í að bara vita ekkert hvað felst í þessu. Þetta er staðreynd. Svona er þetta.
Við sóttum um aðlögun að Evrópusambandinu, við gerðum það. Það komu fullt af niðurstöðum út úr því og eitt er það t.d., sem við vissum, að það er stór munur á ESB og EES. Við framseljum ekki vald í EES, við þurfum að taka það upp sjálf, Alþingi Íslendinga. En við framseljum vald ef við göngum í Evrópusambandið. Við framseljum vald til stofnana Evrópusambandsins. Það þýðir, ef Ísland er í Evrópusambandinu, að þú þarft að snúa þér að stofnunum Evrópusambandsins, ekki íslenskum stofnunum. Eini aðilinn sem má breyta lögum í Evrópusambandinu er framkvæmdastjórnin þannig að jafnvel ef einhver sem hér er inni væri kosinn Evrópuþingmaður þá má hann ekki flytja frumvörp. Það er bara framkvæmdastjórnin. Svo lýðræðislegt er þetta. Við þurfum að fylgja sameiginlegri stefnu og vera í samstarfi á málefnasviðum sem við erum ekki í núna, um tollamál, sjávarútvegsmál, landbúnaðarmál. Við tökum þátt í samstarfinu í rauninni á 11 málefnasviðum í gegnum EES, nokkrum í viðbót að hluta til. En við þurfum að taka öll 35 málefnasviðin yfir — ekki yfir, ætli það sé ekki betra að segja undir, við verðum partur af þeim.
Þrátt fyrir að fyrri Jóhönnustjórnin hafi farið þá leið, virðulegi forseti, að eyða lengri tíma heldur en nokkur þjóð, fyrir utan kannski Tyrkland sem hefur aldrei klárað, í aðlögunarviðræður, um þrjú ár, þá hættu menn og opnuðu ekki stærstu kaflana. Og nú segja menn, og það þarf að ræða sérstaklega, að við séum aðildarríki, viðræðum hafi aldrei verið slitið. Ég hvet alla, virðulegi forseti, til að fara núna inn á vefinn og skoða hvað Evrópusambandið segir. Evrópusambandið segir, ef þú ferð á vefinn hjá því, að við séum ekki aðildarríki. Það er ákveðin staða að vera aðildarríki, þú hefur aðgang að einhverjum fundum og annað slíkt. Ursula von der Leyen kom hér og það var vel tekið á móti henni, ekki til þess að láta hana segja: Við í Evrópusambandinu ætlum að sjálfsögðu ekki að brjóta EES-samninginn á okkur. Að sjálfsögðu ætlum við ekki að setja á ykkur refsitolla. Það kom ekki til þess. Þó var búið að vita það í 11 mánuði að það væri það sem Evrópusambandið væri að gera. Hún kom hingað til að segja: Aðildarumsóknin er í gildi. Við í ESB erum að plata, alla daga, við erum með öll ríki sem hafa sótt um aðild og eru með stöðu aðildarríkis, meira að segja Tyrkland. Tyrkneska umsóknin er samkvæmt öllum steindauð. Tyrkland sótti um aðild að Evrópusambandinu þegar ég var í menntaskóla og þó að ég líti út eins og smástrákur þá er þó nokkuð síðan að ég var í menntaskóla. Og það var ekki á lokaári mínu í menntaskóla sem Tyrkland sótti um aðild.
Svo kom ýmislegt út úr þessu. Þetta snýst um að við færum völd. Þó að við höfum klárað mjög fáa kafla þá liggur mjög margt fyrir mjög skýrt. Við erum að færa völd frá Íslandi yfir til Evrópusambandsins. Ef við erum aðilar að sameiginlegu tollastefnunni þá hækkar verð á ýmsum vörum vegna þess að við erum með lægri tolla heldur en Evrópusambandið, sem kemur sér illa, sérstaklega fyrir atvinnuvegina, bæði orkufrekan iðnað og sjávarútveg, 75% af tolltekjunum fara til Brussel. Okkur var gert þá, á verðlagi þessa árs, að setja 3,8 milljarða í ný tölvukerfi og fjölga starfsmönnum tollsins um 200–300. Þetta liggur allt fyrir. Hvalir. ESB mun ráða því hvort við fáum að veiða hval. Heimskautarefur. ESB mun ráða því. (Gripið fram í: Það verður bannað. )Bæði refurinn og hvalurinn eru á bannlista, það er bannað að veiða þá. Reyndar er það þannig að alla þá fugla sem við veiðum er bannað að veiða nema það sé sérstaklega sett inn í samþykktir. Til dæmis er bannað að veiða heiðagæs, guð má vita af hverju það er, en það er bannað. Þá þurfa þeir hv. þingmenn sem kannski vilja gera það, að lobbíera í Brussel til að fá leyfi til að veiða íslenska heiðagæs. Einhver kynni að segja að þetta sé smámál. Hvaða rök eru fyrir því að Brussel ákveði hvort við nýtum okkar auðlindir eða ekki. Fyrir okkur suma er heiðagæsin auðlind og það er ekkert sem mælir gegn því. En við myndum ekki ráða því lengur, Evrópusambandið myndi ráða því. Þetta liggur allt saman fyrir. Þú mátt ekki sækja egg og það má ekki veiða svartbak og allt milli himins og jarðar.
Mér finnst með slíkum ólíkindum — auðvitað finnst mér skrýtið að einhver vilji ganga í ESB, en mér finnst algjörlega með ólíkindum hvernig jafnvel fræðimenn, stjórnmálamenn, sem ég er búinn að ræða við í áratugi um þessi mál, hafa skyndilega misst minnið og horfi á þing og þjóð og segi: Veistu það, ég er rosa spenntur að sækja um aðild að Evrópusambandinu og kanna hvað er í boði. (Forseti hringir.)
Virðulegi forseti. Ég mun halda aðra ræðu um málið, en ég verð að segja eins og er að það er ekki boðlegt að bjóða þingi og þjóð upp á þennan málflutning. Hann stenst enga skoðun. (Forseti hringir.) Við skulum taka umræðu um það hvort við eigum að fara í Evrópusambandið eða ekki en menn verða að koma til dyranna eins og þeir eru klæddir og kannast við staðreyndir.