þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Stutta svarið er nei. Nú er það ekki þannig að ég hafi ekki haft mikil samskipti við forystumenn Evrópusambandsins. Auðvitað fór ég út, ég var að gæta hagsmuna Íslands. En ég var ekki bara í Brussel eins og sumir, nefnum engin nöfn. En: Nei, aldrei. Ég spurði fyrirrennara minn, fyrrverandi hæstv. ráðherra Lilju Alfreðsdóttur, og hún kannaðist ekki við það. Ég spurði eftirmann minn, hv. þm. Þórdísi Kolbrúnu Gylfadóttur, og hún kannaðist ekki við að það hafi nokkurn tíma komið upp. Og nú er það þannig að það voru mikil samskipti og það hefði ekki farið fram hjá neinum ef við hefðum verið aðilar. Nú liggur alveg fyrir, virðulegi forseti, að ég vildi hins vegar fara með það inn í þingið, ég vildi að þingið myndi afgreiða þetta líka. Það var af tvennum ástæðum: Sumir voru alltaf að tönnlast á þessu og í annan stað vildi ég fá umræðuna um Evrópusambandið. En ég get líka sagt hv. þingmanni annað sem hann spurði ekki um. Ef hv. þingmaður hefði spurt mig hve margir af kollegum mínum hefðu spurt: Af hverju sækið þið ekki um aðild að Evrópusambandinu? Þá væri svarið: Enginn. Og reyndar er það þannig að kollegar mínir, sem voru harðir Evrópusambandssinnar heima fyrir, sögðu: Þið megið alls ekki gera það. Það er engin skynsemi í því. Orkan sem fer í þetta er náttúrlega svo gríðarlega mikil.
Á mínum tíma gerðum við mjög margt. Við vorum í norðurslóðamálum, í forystu þar, eins og var vel þekkt þá. Við vorum í Norðurlandasamstarfinu, mannréttindaráðinu. Við lögðum mikla áherslu á öryggis- og varnarmálin og breyttum mjög miklu þar og þannig get ég lengi áfram talið. Það sér það hver maður, ef við förum yfir tölur, að ef við hefðum þurft að gæta hagsmuna okkar á öllum sviðunum, ekki bara þess litla sem við innleiðum núna í gegnum EES-samninginn, hefðum við aldrei getað gert það nema með því að fjölga starfsfólki utanríkisþjónustunnar verulega.