þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þetta er alrangt og hefur verið hrakið hvað eftir annað. Fyrsti aðilinn sem hrakti þetta var sá góði foringi sem við kveðjum núna í útför á föstudaginn. Hann svaraði þessari fyrirspurn um þessi hlutföll sem kemur m.a. fram í þessari skýrslu frá 2018, Gengið til góðs: Skref í átt að bættri framkvæmd EES-samningsins. Þetta eru upplýsingar frá EFTA og prósentuhlutfallið var 13,4%. Ég veit ekki hvernig menn geta nálgast þetta, menn finna engar heimildir til þess. Ef þú ætlar að skoða málefnasviðin þá er þetta kannski einn þriðji, eitthvað slíkt. En menn hafa talað um þetta, að við séum að innleiða 80% af reglum Evrópusambandsins. Það stenst ekki neina skoðun, ekki frekar en þegar menn eru að tala um helstu viðskiptalöndin. Það er aumt þegar framlag þeirra (Forseti hringir.) sem vilja ganga í Evrópusambandið er að fara fram með blekkingar. En það er mjög einfalt að leiðrétta þetta og það verður gert.