þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir hans ræðu. Mér þóttu þetta vera áhugaverðar lýsingar á málflutningi okkar sem viljum halda áfram með þessar aðildarviðræður, viljum ná aðildarsamningi og sjáum kosti í því að Ísland verði aðildarríki að Evrópusambandinu — eitthvað á þá vegu að við vitum ekkert hvað Evrópusambandið sé og o.s.frv. Ég tel mig bara vita þokkalega hvað Evrópusambandið er. Ég bjó í Evrópusambandinu í nokkur ár eins og sennilega margir hér inni sem hafa einhvern tímann búið í Evrópusambandinu. (BHar: Það er betra að búa á Íslandi. )Hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson hvatti þingheim til að að eiga í samtölum við útlendinga um þessi mál. Ég hef nú bara gert það og ég hef einmitt verið að lýsa þeirri skoðun minni að ég vilji að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu. Ég sé mikla kosti og held að Íslandi gæti verið betur borgið sem aðildarríki í Evrópusambandinu og viðkomandi er bara: Ókei, ætlið þið þá að sækja um? Já, mér finnst það vera góð hugmynd að við sækjum um. Við erum hins vegar, eins og þú kannski veist, ríki þar sem 30% af okkar útflutningstekjum eru frá sjávarútvegi. Sjávarútvegurinn er einn af okkar grunnatvinnuvegum, það er eitthvað sem við þurfum að eiga í samtali um. Ókei, þá gerum við það. En það þarf þá að sækja um. Við þurfum að taka samtal um það og það er eitthvað sem ég vil láta reyna á. Það er alveg ljóst að hv. þingmaður er algerlega andsnúinn því að sækja um aðild að Evrópusambandinu, ganga inn í Evrópusambandið o.s.frv. Ég væri til í að spyrja: Hyggst hv. þingmaður samþykkja það að við leggjum þessa stóru ákvörðun í dóm þjóðarinnar?