157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:01]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég veit ekki hvort ég eigi að þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar og ég veit ekki hvort hann sé viljandi að misskilja mig. Ég hvatti hv. þingmenn stjórnarliðsins til að koma til dyranna eins og þeir ættu að vera klæddir og kannast við hvað Evrópusambandið er af því að hv. þingmenn hafa ekki gert það. Hv. þingmenn og hæstv. ráðherrar hafa hreint og klárt sagt, sem stenst enga skoðun, að við séum að fara í samningaviðræður eins og þetta sé algerlega óljóst. Hæstv. forsætisráðherra hefur sagt að við ætlum ekki að ræða ESB. Þetta snýst um ESB. Ef hv. þingmaður er fylgjandi því að Ísland gangi í ESB, sem hann er, þá er ég ekki sammála honum en ég ber virðingu fyrir því. En þá skulum við taka umræðuna um ESB; hvað ESB er, hvaða afleiðingar það hefur í för með sér fyrir Ísland ef við sækjum um aðild. Gerum það bara heiðarlega. Hættum þessum blekkingaleik. Ef hv. þingmaður hefur talað við t.d. þingmenn á Evrópuþinginu eða einhverja þingmenn í þjóðþingum eða þá sem eru þekkja til og hefur sagt: Veistu það, á Íslandi þykist enginn vita hvað felst í að vera í Evrópusambandinu en við ætlum að sækja um til að kanna hvað er í boði. Já, hv. þingmaður hlær, eðlilega, vegna þess að fyrstu viðbrögð eru annaðhvort að það er nákvæmlega hlegið eða menn halda að þú hafir verið að útskýra þetta með röngum hætti. Varðandi þessa atkvæðagreiðslu þá hef ég nú greitt atkvæði með henni einu sinni, að vísu með atkvæðaskýringu um að þetta sé fullkomlega galið. Það er ekki hægt að sækja um aðild að Evrópusambandinu hjá ríkisstjórn sem vill ekki ganga inn í Evrópusambandið. Ég sagðist vilja gera allt sem við gætum til að koma í veg fyrir að við færum inn í Evrópusambandið og þess vegna samþykkti ég þessa tillögu. Það kemur auðvitað í ljós hvað ég geri en (Forseti hringir.) hins vegar getum við aðeins rætt hver gallinn sé við þessa aðferðafræði. En ég hlakka hins vegar til þessarar kosningabaráttu.