þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Mér finnst ég bara vera að koma til dyranna nákvæmlega eins og ég er klæddur. Ég hlakka til, eins og hv. þingmaður, þessarar kosningabaráttu, að ræða kosti og galla Evrópusambandsins. En það er ekki það sem þessi þingsályktunartillaga snýst um, heldur snýst hún um að fela þjóðinni að taka þá ákvörðun og síðan munum við þingmenn, sem og þjóðin öll, taka þátt í þeirri kosningabaráttu. Við getum til að mynda talað um þann kostnað sem íslenska krónan hefur í för með sér, að við séum með 1000 milljarða í gjaldeyrisvaraforða sem kostar okkur milljarða á ári hverju að halda úti. Það er eitthvað sem við tökum umræðuna um. Það að við þurfum alltaf að vera með hærri vexti til að gera heiðarlega tilraun til að ná verðbólgumarkmiði. Það er eitthvað sem við getum tekið heiðarlega umræðu um, komum við til dyranna eins og við erum klædd. Ég tek bara heils hugar undir með hv. þingmanni: Komum til dyranna eins og við erum klædd en þá þurfum við að samþykkja þessa þingsályktunartillögu og leyfa þjóðinni að taka þessa stóru og mikilvægu ákvörðun.