157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:06]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir prýðilega ræðu. Í andsvörum og í ræðu minni hér fyrr í dag hef ég gert að umtalsefni fyrri ummæli hæstv. forsætisráðherra um áherslur er varða aðdraganda að einhvers konar skoðanakönnun eða inngöngu, hvað sem við kjósum að kalla þetta, eða aðlögun að Evrópusambandinu. Hv. þingmaður gerði slíkt hið sama í erindi sínu. Hann vitnaði til mun nýrri ummæla um að forsætisráðherra hygðist selja Ísland fokdýrt. Það fór um mig nettur hrollur þegar ég heyrði þessi ummæli, en um leið ákveðið þakklæti. „Að selja“ er hugtak og „framsal“ er hugtak og þau eru náskyld. Hér er í raun og veru ákveðin viðurkenning á því, að mínu mati og mig langar að vita hvað hv. þingmanni þykir um það, að það muni eiga sér stað, gangi þetta ferli alla leið, ákveðið framsal, framsal á valdi. Við munum færa vægi atkvæða lengra frá kjósandanum, til þeirra sem taka ákvörðun. Nógu langt hefur kjósendum þótt leiðin vera í gegnum tíðina, þ.e. hvernig atkvæði þeirra skila sér í verkum hér í þessum sal. En það er enn lengra í átt til þeirra sem munu framkvæma kosningaloforðin, ef þau verða þá yfirleitt framkvæmanleg, þegar valdið verður komið út úr landinu.

En af því að ég á örfáar sekúndur eftir vil ég nefna önnur ummæli í þessari sömu frétt. Þar segir hæstv. forsætisráðherra, með leyfi forseta: „Ég sagði, og stend við það, að þetta væri ekki forgangsmálið.“ Ég spyr hv. þingmann: Hver er skilgreiningin á forgangsmáli ef ekki að hreinsa dagskrá þingsins í tvo daga fyrir eitt mál?