þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég veit ekkert hvað verður um Viðreisn. Ég hef enga trú á því að það fólk, sem lífið gengur út á að komast inn í þetta bandalag, hætti því. Það verður bara hægt að finna einhverja aðra tímapunkta og önnur rök. Það eru alltaf ný rök. En mér fannst gott að hv. þingmaður tók eftir því að ég var að ræða þarna um hluti sem snerta marga einstaklinga af alls konar ástæðum en þó aðallega snertir það það að við Íslendingar höfum þurft að hafa fyrir því að fá þessi völd og önnur. Það er ekki sjálfgefið. Við vorum ekki með þau. Við fengum þessi völd eftir mikla baráttu þeirra sem á undan fóru. Fólk verður að átta sig á því að við erum að taka þessi völd sem við erum með hjá okkur og fara með þau í erlenda borg, fara með þau til Brussel. Ef hér væri vel að verki staðið þá værum við með kynningarefni (Forseti hringir.) um þessa hluti frá óháðum aðilum og við værum að taka afstöðu til þessa (Forseti hringir.) um leið og við tökum ákvörðun um þessa þjóðaratkvæðagreiðslu. En þessi ríkisstjórn ætlar ekki að fara þá leið.