þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er mikilvægt að við heyrum líka í sem flestum stjórnarliðum í þessari umræðu. Það er gott að sérstaklega þeir sem sitja í utanríkismálanefnd tjái sig og það er gott að heyra að hv. þingmaður muni einbeita sér að því að vinna málin vel í hv. utanríkismálanefnd, taka á móti gestum, umsögnum og fara vel yfir málið. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Telur hann að ríkisstjórnin hafi gert nákvæmlega það eða hæstv. ráðherra þegar þetta mál var undirbúið og áður en það var lagt fram í þinginu? Telur hv. þingmaður að sú undirbúningsvinna fullnægi þeim kröfum sem við almennt setjum og gerum til stjórnarmála? Nú vísa ég að sjálfsögðu í reglur ríkisstjórnarinnar og leiðbeiningar um það hvernig stjórnarmál á að bera upp hér í þinginu. Telur hv. þingmaður að það hafi verið faglega staðið að þeirri vinnu og hvað telur hv. þingmaður mögulega að hefði mátt fara betur í þeirri vinnu?