þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Auðvitað er endalaust hægt að tala um hvort hlutirnir séu vel gerðir eða ekki, vel undirbúnir, en þessar fjórar litlu blaðsíður um þetta risastóra mál er varla hægt að fullyrða að sé góð vinna og vönduð vinnubrögð. Hér er ekkert kostnaðarmat, þrátt fyrir að það sé skrifað skýrt inn í reglur Stjórnarráðsins að það eigi að vera í stjórnarmálum, ekkert kostnaðarmat, ekkert annað áhrifamat. Ég hef gert t.d. athugasemdir við dagsetninguna. Það er ekki fjallað sérstaklega um það af hverju þessi dagsetning er svona góð. Hvernig getur það verið lýðræðislegt og gott í þessu máli að vera með atkvæðagreiðslu 29. ágúst þegar þing er ekki að störfum og fólk er nýkomið úr sumarfríi? Eru einhver rök fyrir því að ríkisstjórnin velur þá dagsetningu? Telur hv. þingmaður að sú dagsetning sé vel til þess fallin að ganga í þessa atkvæðagreiðslu? Telur hv. þingmaður mögulega að kalla þyrfti þing saman viku fyrir slíka atkvæðagreiðslu eða væri kannski eðlilegra að utanríkismálanefnd myndi breyta dagsetningunni í meðförum þingsins?