157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:29]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Af því að hv. þingmaður spyr mig og ég skil hann svo að hann vilji vera í sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni: Sameiginlega sjávarútvegsstefnan heitir sameiginlega sjávarútvegsstefnan af því að hún er sameiginleg sjávarútvegsstefna. Við erum ekki með sameiginlega sjávarútvegsstefnu með neinum. Við bara ráðum þessu sjálf. Ef við förum inn þá erum við með sameiginlega sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Það er ekkert flókið. Þá er valdið hjá Brussel. En vissulega eru menn með alls konar reglur. Sumar halda betur en aðrar en þannig er það.

En ég vil spyrja hv. þingmann: Af hverju hætti síðasta ríkisstjórn, Jóhönnustjórnin, hæstv. utanríkisráðherra og hæstv. forsætisráðherra, öll sú ríkisstjórn, í vegferðinni? Af hverju kláruðu þau hana ekki? Þau voru í henni í þrjú ár, lengur en nokkurt annað ríki. Það er í fyrsta skipti sem hafnar eru formlegar viðræður og (Forseti hringir.) þeim hætt. Þið hljótið að hafa rætt þetta í Samfylkingunni. Af hverju var þessu hætt? Af hverju fengu (Forseti hringir.) menn ekki að sjá niðurstöðuna?