157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:36]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég útiloka ekki einn einasta sérfræðing sem getur varpað einhverju ljósi á það sem þarf í þessari vinnu nefndarinnar. Ég held að það skipti engu máli hver það er eða hvernig sá aðili er tengdur inn í þetta ef hann getur varpað einhverju ljósi á það sem nefndin þarf að vita í sinni vinnu. En aftur þetta: Við erum að fara að fjalla um þessa þingsályktunartillögu og þær upplýsingar sem við þurfum til að geta látið þessa þjóðaratkvæðagreiðslu fara fram á þeim tímamörkum sem við höfum í því. Ég sé enga ástæðu til þess fyrir fram — eða ég sé bara yfir höfuð enga ástæðu til þess að það séu einhverjir sérfræðingar sem við förum að útiloka í samtali okkar í nefndinni. Þess vegna liggur aftur svona á, finnst mér. Ég vil fá að vinna í þessu máli og þess vegna finnst mér svo mikilvægt að við fáum það í nefndina sem allra fyrst til þess t.d. að fara að búa til þennan lista. Hverja ætlum við að fá fyrir nefndina? Hvaða sérfræðinga viljum við tala við? Hverjir eru það sem skiptir máli í vinnunni okkar? Það er þess vegna sem ég hvet enn og aftur þingheim til að klára málið hér í þingsal í fyrri umræðu þannig að nefndin geti byrjað að vinna. Því fyrr því betra, þá getum við tekið það í síðari umræðu.