þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingvari Þóroddssyni fyrir hans andsvar og þessar vangaveltur. Nei, veistu það, ég hef engar sérstakar skýringar á því af hverju menn eru hér að tala eins og það er talað. Ég hef fulla trú á því að það sé um eitthvað að semja. Menn geta kallað þetta aðildarviðræður, menn geta kallað þetta aðlögunarviðræður og menn geta kallað þetta samningaviðræður; þetta snýst um það að fólk er að fara að setjast niður og ræða um þá þætti sem snúa að því hvað þurfi að gera báðum megin við borðið ef Ísland á að ganga í Evrópusambandið. Þetta eru samningaviðræður, alveg sama hvaða orð menn vilja nota yfir það. Það er um eitthvað að semja og þess vegna erum við að spyrja þjóðina: Viljið þið að við höldum áfram? til að setjast síðan í framhaldinu niður og semja við Evrópusambandið, koma með þann samning til þjóðarinnar og segja: Er þetta eitthvað sem þið teljið að geri lífið okkar betra, að okkar daglega líf verði betra með þessum samningi eða ekki?