157. löggjafarþing — 81. fundur,  10. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[23:40]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Víði Reynissyni kærlega fyrir hans svar við mínu andsvari. Annað sem er mér svolítið hugleikið: Ég er nokkuð oft í kvöld og í gær búinn að heyra orðinu „hræðsluáróður“ fleygt hérna fram. Því hefur verið haldið fram að þau sem vilja leggja af stað í þessa vegferð, að spyrja þjóðina, séu að beita hræðsluáróðri. Ég hlustaði mjög vel á ræðu hv. þingmanns hérna áðan og það var engan hræðsluáróður að finna þar. Aftur á móti heyrðum við t.d. hér áðan varaformann Sjálfstæðisflokksins halda því fram að með því að samþykkja þessa þingsályktunartillögu þá værum við einhvern veginn að gera það að verkum að börn framtíðarinnar verða kveðin í Evrópuher. Hvað er það annað en hræðsluáróður? spyr ég hv. þingmann.