frestur á svörum við fyrirspurnum.
Frú forseti. Nú hefur forseti lesið hér upp tilkynningar frá æðimörgum ráðherrum sem óska eftir fresti til að svara skriflegum fyrirspurnum. Þetta er eitt af okkar mikilvægustu tækjum til að hafa eftirlit með framkvæmdarvaldinu. Mér finnst mikilvægt að við horfum í það og vegna þess að ráðherrabekkurinn er nú ágætlega mannaður hér í dag að ráðherrarnir taki það til sín að fylgja þingsköpum þegar kemur að því að svara fyrirspurnum frá okkur þingmönnum. Ég ætla, með leyfi forseta, að benda hér á fyrirspurn sem ég lagði fram 9. desember. Hún varðaði það hversu mörg stjórnarmál hefðu farið inn í samráðsgátt og hversu mörg hefðu ekki farið þangað og af hverju þau hefðu ekki farið þangað. Það ætti ekki að vera flókið fyrir hæstv. ráðuneyti eða ráðherra að svara þessari fyrirspurn. Tilkynning var síðast lesin upp hér í þingsal 15. janúar en nú er kominn miður mars og ekkert hefur heyrst síðan þá. Ég beini því til hæstv. forseta að eiga þetta samtal við ráðherrann. Það er mikilvægt að þessum fyrirspurnum sé svarað og þeim sé svarað í tíma.