157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

markmið með þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna.

[15:11]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Hér er verið að óska eftir svörum. Ég var að veita þau svör. Ég veit ekki hvers konar leikur þetta er. Það er hægt að fletta upp því sem ég var að segja hérna áðan. Ég var að tala um að samningsmarkmið hljóti að fela í sér fullt forræði yfir auðlindum landsins. Hversu oft ætlar stjórnarandstaðan að koma hér upp og spyrja sömu spurninganna, tortryggja sömu hlutina eftir að það er búið að svara þessu ítrekað? Þetta liggur alveg fyrir. Þjóðin veit sínu viti og hún getur vel kynnt sér málin. Við treystum þjóðinni til að kynna sér málin. Þetta stendur allt saman í greinargerðinni og það er algerlega óþarfi að koma hér reglulega upp með þessa taktík í pólitík, að láta eins og hlutunum sé ekki svarað eða láta eins og það sé ekki hægt að hlusta á það sem hér er sagt.

Við erum komin á þann stað að við getum treyst þjóðinni fyrir þessu ferli. Þetta mál fær góða þinglega umræðu. Það er nú þegar búið að fá lengri þinglegri umræðu en þingsályktunartillaga um aðildarviðræður á sínum tíma, og þetta er þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort eigi að hefja aðildarviðræður. Tillagan fer inn í nefnd, hún fer til síðari umræðu. Svo fær þjóðin þetta í hendurnar og síðan spyrjum við að leikslokum. Við munum virða þá niðurstöðu sem kemur út úr þessu, sama hver hún verður, og það er auðvitað þannig að meiri hlutinn mun ráða í þessu samhengi.