afstaða ráðherra í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Virðulegur forseti. Já, ég er á svipuðum slóðum og hv. þingmaður sem var hér á undan mér. Ríkisstjórnin er svo sannarlega búin að setja ESB-aðild á dagskrá. Flokkur fólksins hefur ítrekað lagt fram þingsályktunartillögu og talað fyrir því hér á þinginu allt frá árinu 2019 að umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu verði dregin til baka. Hæstv. barna- og menntamálaráðherra og formaður Flokks fólksins hefur raunar sagt að engin ástæða sé til þess að Ísland kasti sér lengra í fangið á Evrópusambandinu en hún situr nú í ríkisstjórn sem hyggst hefja aðildarviðræður við ESB á ný. Kannski hefur Flokkur fólksins samþykkt þennan könnunarleiðangur til að halda ríkisstjórnarsamstarfinu saman en afstaða flokksins hefur lengi legið fyrir. Flokkurinn er ekki hallur undir aðild að ESB og ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að vera skýr hér áðan í því að það virðist enn vera afstaðan. Hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson orðaði það svo í ræðustól eitt sinn, með leyfi forseta:
„Því miður verður bara að segjast eins og er að Evrópusambandið tekur smáþjóðir og gleypir þær í einum bita í morgunmat. Þær eiga engan séns þarna inni, það er ekki möguleiki að eiga við þetta bákn.“
Því spyr ég hæstv. ráðherra í ljósi þessara ummæla og þeirra mála sem Flokkur fólksins hefur lagt fram hér á þingi: Hvernig hyggst hæstv. ráðherra greiða atkvæði í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu og hvernig hyggst flokkur hennar tala í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar? Nú hafa forsætisráðherra og utanríkisráðherra líka tjáð sig um nauðsynlegan stuðning þjóðarinnar í þessari atkvæðagreiðslu. Forsætisráðherra sagði hér fyrir kosningar að það væri eðlilegt að það væri aukinn meiri hluti, 70% á móti 30% var nefnt í því tilliti, en utanríkisráðherra hefur svarað því skýrt til að það sé bara einfaldur meiri hluti sem dugi. Hver er afstaða hæstv. ráðherra til þess? Dugar einfaldur meiri hluti, þ.e. 51% þeirra sem greiða atkvæði? Það er ekkert víst að það verði 100% kosningaþátttaka þannig að það kann vel að vera að minni hluti (Forseti hringir.) kosningarbærra aðila tjái sig með þeim hætti. Dugar það hæstv. ráðherra til að þessi vegferð verði hafin?