afstaða ráðherra í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Virðulegur forseti. Þetta var mjög áhugavert. Þjóðin sem gekk að kjörborðinu fyrir rétt rúmu ári síðan og kaus á ekki einu sinni að fá að vita hvernig fulltrúar í einum stjórnarflokknum hyggjast tala í aðdraganda stærstu og mikilvægustu þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer. Það kemur engum við hvernig formaður Flokks fólksins hyggst greiða atkvæði í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu eða hvernig þingmenn hans tala í aðdragandanum. Fyrirgefið, virðulegur forseti, ég er bara eiginlega orðlaus. Hæstv. ráðherra hefur lýst því eindregið yfir að hann sé á móti aðild að Evrópusambandinu. Hér í þessum ræðustól hefur ítrekað heyrst að þau vilji ekki ganga lengra. Þau vildu taka þær höfnu samningaviðræður fyrir einhverjum árum síðan til baka. Nú á að greiða atkvæði um að halda áfram með þessar viðræður og þau vilja ekki einu sinni segja okkur hvernig þau ætla að kjósa.
Virðulegur forseti. Ég er algjörlega bit en verð þá ég að bæta við einni spurningu í viðbót: Telur hæstv. ráðherra ásættanlegt að Ísland verði aðili að sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni? Og vegna þess að það kom eitt skýrt fram á blaðamannafundinum þegar þessi þingsályktunartillaga var tilkynnt, þegar blaðamaður spurði hæstv. ríkisstjórn um það (Forseti hringir.) hvort samningsmarkmiðin yrðu þau sömu og síðast og þá sagði hæstv. ráðherra: Nei, nei, nei, en í þingsályktunartillögunni sem hér liggur fyrir er bara fjallað um þau samningsmarkmið sem þá lágu fyrir. (Forseti hringir.) Hver eru samningsmarkmiðin? Hvaða umboð gefur hæstv. ráðherra samstarfsráðherra sínum í ríkisstjórn til að fara til Brussel og setjast við borðið? (Forseti hringir.) Hver eru rauðu strikin hjá hæstv. ráðherra?
(Forseti (ÞSv): Forseti biður hv. þingmenn að virða ræðutímann.)