157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

staða framkvæmdastjóra Sjúkrahússins á Akureyri.

[15:35]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Óvissuástandið á Sjúkrahúsinu á Akureyri heldur áfram. Mikil umræða hefur verið um svokallaða ferliverkasamninga. Starfsmannamál hafa verið í brennidepli með uppsögnum lækna. Nýlega sagði framkvæmdastjóri sjúkrahússins upp störfum og vísaði þar til skorts á trausti af hálfu heilbrigðisráðherra. Það liggur fyrir að á næstu misserum þarf að taka mikilvægar ákvarðanir um rekstur og framtíð sjúkrahússins, þar á meðal um yfirstjórn þess. Einmitt við slíkar aðstæður er lykilatriði að enginn vafi leiki á hæfi og óhlutdrægni ráðherra sem fer með yfirstjórn málaflokksins og þar með eftirlit með Sjúkrahúsinu á Akureyri.

Mig langar að nefna þrennt í þessu samhengi. Í fyrsta lagi: Heilbrigðisráðherra vék nýlega sæti við meðferð máls sem tengdist ferliverkasamningum á Sjúkrahúsinu á Akureyri þar sem eiginmaður hennar starfaði á sjúkrahúsinu og var með slíkan samning. Það var mat ráðherra sjálfrar að aðstæður væru þannig að hennar hæfi til meðferðar málsins gæti verið dregið í efa.

Í öðru lagi: Eiginmaður ráðherra lagði fram vantrauststillögu á framkvæmdastjórn Sjúkrahússins á Akureyri í kjölfar fyrirætlana um uppsögn þessara ferliverkasamninga. Við skulum hafa í huga að ferliverkasamningar eins og eiginmanns ráðherra skila tugum milljóna yfir þriggja ára tímabil til fyrirtækis í eigu heilbrigðisráðherra.

Í þriðja lagi: Í beinu framhaldi tekur heilbrigðisráðherra þá ákvörðun að auglýsa stöðu framkvæmdastjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Fagráð sjúkrahússins hefur lýst yfir verulegum áhyggjum af þessari stöðu og ályktað að farsælast hefði verið að forstjóri hefði setið áfram. Samkvæmt 3. gr. stjórnsýslulaga er stjórnvald vanhæft þegar aðstæður eru til þess fallnar að óhlutdrægni þess sé dregin í efa, óháð því hvort raunveruleg hagsmunatengsl séu til staðar. Umboðsmaður Alþingis hefur ítrekað þessa lögskýringu.(Forseti hringir.) Því spyr ég hæstv. heilbrigðisráðherra: Á hvaða grundvelli telur ráðherra sig hafa verið hæfa til að taka þá ákvörðun að auglýsa stöðu (Forseti hringir.) framkvæmdastjóra Sjúkrahússins á Akureyri lausa?