staða framkvæmdastjóra Sjúkrahússins á Akureyri.
Frú forseti. Það er spurt um margt í þessari fyrirspurn; fyrst um auglýsingu og hvort undirrituð hafi verið hæf til að koma þar að. Ég þekki hæfisreglur stjórnsýslulaga vel og þær eru ekki hugsaðar þannig að viðkomandi geti komið sér hjá erfiðum ákvörðunum. Ég hef vikið sæti í máli er snertir ferliverkása en ekki í öðrum málum. Það var ákveðið að auglýsa þau störf forstjóra heilbrigðisstofnana sem losna á þessu ári, það var annars vegar embætti forstjóra SAk og hins vegar HSA. Það er jú þannig að skipunartími embættismanna samkvæmt lögum er fimm ár og það er bundið í lög að upplýsa um ákvörðun um að auglýsa starfið með minnst sex mánaða fyrirvara. Það eru kostir og gallar við að auglýsa slíkt starf. Kostirnir eru þeir að það fæst endurnýjun og ný sýn sem oft er þörf á og það gefur tækifæri til nýrrar hugsunar og áherslna. Það er aukið gagnsæi í slíku ferli og fleiri fá tækifæri. Og auðvitað er það þannig að telji forstjóri að hann hafi áfram mikið fram að færa er auðvitað um að gera að sækja um og sannfæra hæfisnefnd og ráðherra um slíkt í umsóknarferlinu. Ferlið er auðvitað vel til þess fallið að horfast í augu við starfið og nýjar áherslur. Gallarnir eru auðvitað þeir að það getur skapað óvissu. En hér var hægt að fá inn afleysingu, manneskju sem oft hefur gegnt því starfi, þannig að ég tel mig hæfa til að auglýsa starfið. Síðan þegar kemur að úrvinnslu, eins og alltaf, fer það eftir því hverjir sækja um.