staða framkvæmdastjóra Sjúkrahússins á Akureyri.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir, en við stöndum hérna frammi fyrir grundvallarspurningu um stjórnsýslu og traust á stjórnsýslunni. Getur ráðherra sem þegar hefur viðurkennt vanhæfi í málum sem tengjast Sjúkrahúsinu á Akureyri vegna persónulegra tengsla nú tekið ákvarðanir um ráðningu nýs framkvæmdastjóra? Aðstæðurnar sem hæstv. ráðherra viðurkenndi sem vanhæfisgrundvöll eru enn til staðar. Eiginmaður ráðherra er aðili að umræddum samningum. Viðkomandi lagði fram vantrauststillögu á framkvæmdastjóra sjúkrahússins í kjölfar fyrirætlana um uppsögn þeirra. Í framhaldinu ákveður ráðherra að auglýsa stöðu framkvæmdastjóra í stað þess að framlengja ráðningarsambandið eins og oft er gert, því að lögin kveða ekki á um skyldu til að auglýsa stöðuna aftur þegar sami aðili getur verið endurskipaður, sérstaklega ef forstjóri hefur staðið sig vel, traust ríkir til stjórnandans og enginn sérstakur ágreiningur er til staðar. Þetta er stjórnsýsluákvörðun og pólitísk ákvörðun hjá hæstv. ráðherra. Það er einmitt margt sem bendir til þess að þessi ákvörðun sé bæði ómálefnaleg og líklega ógild, samanber reglur um stjórnsýslurétt, (Forseti hringir.) en hæfisreglur stjórnsýslulaga eru settar til að tryggja að enginn réttmætur vafi vakni um óhlutdrægni þeirra sem fara með opinbert vald.
Því vil ég spyrja: Hyggst ráðherra sjálf fara með það verkefni að ráða nýjan framkvæmdastjóra (Forseti hringir.) Sjúkrahússins á Akureyri? Og ef svo er, telur ráðherra að með hliðsjón af þeim tengslum, greiðslum og deilum sem hér hafa verið raktar (Forseti hringir.) sé útilokað að réttmætur vafi vakni um hæfi hennar samkvæmt stjórnsýslulögum (Forseti hringir.) til að taka slíkar ákvarðanir og yfirleitt eftirlit með stofnunum og fjármálum hennar til lengri tíma?
(Forseti (ÞSv): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutímann.)