157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

staða framkvæmdastjóra Sjúkrahússins á Akureyri.

[15:41]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Alma D. Möller) (Sf):

Frú forseti. Ég tel mig nú hafa svarað spurningunni, um hvort ráðherra hyggist koma að ráðningarferlinu, í fyrra svari. Það fer að sjálfsögðu eftir því hverjir umsækjendur eru og verður metið. En það eru auðvitað margar ástæður fyrir því að störf eru auglýst eða ekki auglýst, bara mjög margvíslegar ástæður, og þetta er ekki í fyrsta skipti sem slík ákvörðun er tekin. Það eru margir hlutlægir mælikvarðar sem horft er til, t.d. rekstur innan heimilda á liðnum árum og margt fleira sem í erindisbréfi stendur. Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri. Það er auðvitað þannig að ráðherra hefur ráðgjafa innan ráðuneytis sem hafa verið þar lengur en ráðherrann þó að auðvitað sé ákvörðunin ráðherrans. Að þessari ákvörðun komu fleiri aðilar en ég tek auðvitað fulla ábyrgð á henni. Og bara til að svara aftur þingmanni þá fer úrvinnsla málsins auðvitað eftir því hverjir umsækjendur eru.