157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

Fangelsismál.

[15:55]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hér og taka þátt í þessari umræðu sem skiptir mjög miklu máli því að fangelsismál snúast um tvö grundvallaratriði, annars vegar öryggi samfélagsins og hins vegar það að ríkið standi við eigin ábyrgð og fullnægi dómum með öruggum og mannsæmandi hætti. Þess vegna skipta þessi mál miklu máli. Ég hef oft sagt að maður getur metið gæði samfélaga út frá því hvernig við komum fram við fólk í viðkvæmri stöðu. Það eru allir í viðkvæmri stöðu sem þurfa að vera í fullnustu refsinga í fangelsi.

Þegar ég gegndi embætti dómsmálaráðherra tók ég ákvörðun um að byggja nýtt fangelsi á Stóra-Hrauni. Ástæðan var einföld. Staðan var og er löngu komin að þolmörkum. Húsnæðið á Litla-Hrauni er úrelt og í vissum tilfellum ónýtt. Álagið í kerfinu er of mikið. Biðin eftir afplánun er allt of löng. Það er hvorki gott fyrir samfélagið, starfsfólkið né þá sem þar afplána. Eins og staðan er núna og hefur verið mjög lengi er ekki hægt að tryggja öryggi fanga. Það er ekki hægt að tryggja öryggi starfsfólks og öll aðstaða fyrir aðstandendur er fyrir neðan allar hellur. En það sem skiptir máli núna eru ekki fleiri almenn orð um mikilvægi verkefnisins. Það er jákvætt að heyra að verkefnið sé að fara af stað en ég verð að spyrja hæstv. ráðherra: Hvenær verður næsti áfangi kominn af stað? Hvenær á að hefja jarðvinnu og hvenær má almenningur gera ráð fyrir að nýtt fangelsi verði tekið í notkun? Það þarf líka að liggja fyrir hvort verið sé að byggja fangelsi sem svarar raunverulegum þörfum, ekki aðeins fleiri fermetra heldur aðstöðu sem gerir kleift að tryggja öryggi, aðgreina fanga eftir áhættu og sinna þessum málaflokki af meiri fagmennsku en áður hefur þekkst.