Fangelsismál.
Frú forseti. Ég þakka hv. málshefjanda fyrir frumkvæðið að þessari umræðu og hæstv. dómsmálaráðherra fyrir þátttökuna í umræðunni um þennan mikilvæga og viðkvæma málaflokk. Mikil þörf hefur verið á heildstæðri stefnumótun í fangelsismálum áratugum saman. Gífurleg fólksfjölgun með innflutningi vinnuafls á undanförnum árum og vöxtur hælisleitendakerfisins hefur sett aukið álag á fangelsismálin. Í BA-ritgerð eftir Lísu Margréti Þorvaldsdóttur frá árinu 2014, sem ber titilinn Fangelsismál á Íslandi: Þróun refsiaðferða, félagsleg þjónusta við fanga og helstu álitamál, er farið yfir stöðu mála. Í dag erum við enn að glíma við sömu álitamálin, verkefni og hindranir og fjallað er um í þessari ritgerð. Enn er alvarlegur skortur á fangarýmum, náms- og starfsaðstöðu, heilbrigðisþjónustu og þjónustu við fanga með geðræn vandamál. Fólk sem afplánar fangelsisdóma er misleitur hópur sem á það eitt sameiginlegt að hafa gerst brotlegur við lögin. Sumir fangar glíma við fjölþættan vanda, þar með talið geðrænan vanda og fíknivanda sem kallar á sértæka þjónustu. Ríkisendurskoðandi gerði athugasemdir við málefni geðsjúkra í fangelsum í skýrslu sem kom út 2010 og beindi því til stjórnvalda að bregðast tafarlaust við athugasemdum um aðbúnað í fangelsum landsins. Staðan hefur verið óviðunandi of lengi og það er gott að heyra að hæstv. dómsmálaráðherra hyggst bregðast skjótt við vandanum. Fangelsin verða að geta sómasamlega sinnt hlutverki sínu um betrun fanga. Það er mjög mikilvægt að byggja fanga upp til að draga úr líkum á endurkomu þeirra í refsivörslukerfið og gera allt sem hægt er til að þeir geti orðið góðir og gegnir þjóðfélagsþegnar. Það er hagur okkar allra að þessi mál séu í eins góðum farvegi og hugsast getur.