Fangelsismál.
Frú forseti. Ég vil í upphafi þakka málshefjanda, hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur, fyrir að vekja athygli á málefnum er varða fangelsismál hér á landi og hæstv. dómsmálaráðherra Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur fyrir hennar svör og skýringar svo og þá umræðu sem hér hefur farið fram. Það er óhætt að segja að fangelsismál hafi verið hálfgert olnbogabarn hér á landi um árabil. Ég man eftir umræðum um fangelsismál fyrir hartnær hálfri öld þar sem umræða var um þörf fyrir byggingu fangelsis og umræða um grunn einn að einu slíku sem stóð árum saman óhreyfður austarlega í borginni en varð raunar aldrei að fangelsi. Nú hillir undir að byggt verði fangelsi að Stóra-Hrauni við Eyrarbakka og er það vel. Það ætti að vera hverju samfélagi grundvallarmarkmið að búa sómasamlega að því fólki sem svipt er frelsi sínu vegna refsiverðrar háttsemi. Það er ekki sæmandi að hugsa svo til þess fólks að það megi þola slæma vist einvörðungu vegna þess að það hafi brotið af sér með refsiverðum hætti.
Frú forseti. Það er mikilvægt að svo sé búið að þeim sem afplána refsivist að þeir eigi möguleika á betrun meðan á dvöl þeirra í fangelsi varir. Til þess þurfa fangar a.m.k. að hafa aðgang að viðeigandi heilbrigðis- og sálfræðiþjónustu og eftir atvikum möguleika á menntun eða starfsþjálfun þannig að þeir hafi aukna möguleika á að hafa að einhverju að hverfa að lokinni afplánun refsingar en annað markmið laga um fullnustu refsinga varðar einmitt þetta atriði, sbr. 1. gr. laganna. Á sama hátt og nauðsynlegt er að refsiföngum séu búin mannsæmandi skilyrði við afplánun refsingar verða þeir fangaverðir og aðrir starfsmenn sem að koma að búa við skilyrði sem mæta þörfum þeirra og starfs þeirra. Ég hef komið á Litla-Hraun nokkrum sinnum sem er það fangelsi á Íslandi sem helst er hægt að skilgreina sem öryggisfangelsi en er það alls ekki. Það er óhætt að segja að aðbúnaður fanga og starfsfólks, þar með talið fangavarða, sé óviðunandi. Þörfin fyrir öryggisfangelsi sem stæði undir nafni er mikil. Sama á við um Kvíabryggju, eins og hv. þm. Stefán Vagn Stefánsson nefndi áðan. Þar er þörf á að bæta aðstöðu fanga og fangavarða.
Að lokum vil ég nefna að fyrir ekki svo löngu var gerður samningur við mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar þess efnis að sjá um grunnmenntun fangavarða og sí- og endurmenntun starfsfólks fangelsanna og er það vel. Hjá menntasetrinu (Forseti hringir.) er mikil þekking á menntun og þjálfun lögreglumanna sem nýtist við þjálfun og menntun fangavarða með aðkomu starfsfólks Fangelsismálastofnunar.