157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

Fangelsismál.

[16:19]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Frú forseti. Kannski ég taki fyrst síðustu spurninguna. Samstarf hefur verið í ráðherranefnd um börn og ungmenni. Þá erum við auðvitað að horfa á forvarnir og til þess hvernig ungmenni endi ekki í fangelsi. Svo reyna ráðuneytin auðvitað að vinna þétt saman almennt séð og það er augljóst samspil á milli heilbrigðisráðuneytisins og dómsmálaráðuneytis og sorgleg dæmi þess að menn hafi verið í fangelsum einfaldlega vegna þess að heilbrigðiskerfið hefur ekki getað annað sínu hlutverki.

Varðandi fangelsi hérna aftur í lokin þá er, eins og ég segi, að fara í hönd útboð á jarðvegsvinnu. Þessi útboðsfasi varðandi jarðvegsvinnu og framkvæmdir mun taka einhverja mánuði og síðan tekur öll uppbyggingin einhver ár, þannig að þetta er framtíðarlausn. Fangelsið verður ekki tekið í notkun alveg strax og þess vegna þurfum við að taka einhver skref og þora að taka einhver skref þangað til. Framkvæmdin hefur verið sú að menn fái reynslulausn eftir helmings tíma og fari síðan í opin úrræði, fari á Vernd, sem hluta af einhverri aðlögun inn í samfélagið. Í þeim tilvikum þar sem það á ekki við, þar sem manna bíður brottvísun frá landinu og endurkomubann, þá þarf ekki að hleypa mönnum út til að fara í einhverja aðlögun að samfélaginu sem aldrei stóð til að yrði. Þess vegna erum við að fara í tímabundið úrræði til eins árs; hleypa mönnum út eftir þriðjung, eingöngu í þeim tilvikum þar sem við blasir að þeirra bíður brottvísun og síðan endurkomubann til Íslands og endurkomubann eftir atvikum inn á allt Schengen-svæðið. Þetta er gríðarlega íþyngjandi úrræði fyrir þá sem fyrir því verða og sannarlega enginn segull. Þetta mun einfaldlega létta á kerfinu og gera okkur fært að taka við þeim mönnum sem við ætlum sannarlega að láta afplána og endurhæfa og skila aftur út í samfélagið. Það á ekki við í þessum tilvikum.

Hér var líka spurt út í fangavarðanámið. Ég nefndi það nú aðeins hérna að við erum með þau mál í ágætisvinnu, fangavarðanámið, (Forseti hringir.) og erum auðvitað alltaf með augun á boltanum um það hvernig okkur geti tekist betur að manna kerfið en nú er.