157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:28]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Hér liggur ekkert smámál fyrir þinginu heldur grundvallarmál fyrir þróun íslensks samfélags á næstu árum. Það þarf ekki annað en lesa í gegnum ræður hér í þinginu frá 2012 til að menn geti rifjað upp fyrir sér hvernig ástandið var orðið þá eftir næstum þrjú ár af aðlögunarviðræðum við Evrópusambandið sem þá stóðu yfir. Í einum fyrirspurnatímanum spyr þáverandi hv. þm. Bjarni Benediktsson, þáverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, þáverandi hæstv. menntamálaráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, hver staðan á viðræðunum væri eiginlega að hennar mati. Þetta er í apríl 2012 og hún svaraði að vissulega hefði þetta allt tekið mun lengri tíma en vonast var til, að hún hefði viljað sjá þessar viðræður ganga hraðar, að mikilvægt væri að drífa í þessu en að hennar afstaða væri ekkert launungarmál og væri óbreytt, með leyfi forseta, að „Íslendingar muni líklega fella aðild í atkvæðagreiðslu“. Þetta var sagt 30. apríl 2012. Eftir tvö, þrjú ár af samningaviðræðum var þetta hljóðið í ráðherrum þess flokks sem þá stóð gegn Evrópusambandsaðild innan ríkisstjórnarinnar. Þau töldu sig vita hvað kæmi út úr þessu og töldu enn ljóst að þjóðin myndi fella þetta, þ.e. tvö, þrjú ár af þessu. Samningaviðræðurnar kláruðust aldrei. Ekki var hægt að opna mikilvægustu kaflana og ljóst var að lokum, og reyndar fyrr í ferlinu, að miklum tíma var eytt í ekki neitt; þreyta, vonleysi og metnaðarleysi gagnvart verkefninu og vaxandi efasemdir af hálfu þeirrar ríkisstjórnar sem átti að leiða þetta verkefni en gafst svo auðvitað upp.

Þessar þingræður frá 2012 eru bara dæmi af handahófi sem slógu mig en þær eru lýsandi og líklega eru til mun verri frásagnir af glötuðum tækifærum Íslendinga frá þessum tíma vegna orkunnar sem var sóað í þetta ferli og þessa vegferð og varð ekki notið að nýju í þjóðþrifaverk fyrr en við tók ríkisstjórn sem lagði áherslu á að efla þjóðarhag hér á okkar eigin forsendum.

Ég segi í þessu samhengi þegar við horfum á þessa þætti að sagan þarf ekki að endurtaka sig. Eins og Evrópusambandið segir sjálft er pakkinn þegar opinn; það fara ekki fram samningaviðræður við ESB heldur aðlögunarviðræður. Þetta stendur bókstaflega skýrum stöfum, m.a. á vef Evrópusambandsins. Ferlið felst samkvæmt þeim upplýsingum í því að umsóknarríkið lagar regluverkið í hverjum kafla fyrir sig að reglum Evrópusambandsins og þegar því öllu er lokið er metið hvort ríkið sé tilbúið til að ganga inn í Evrópusambandið. Eins og uppleggið er hér á að fara í atkvæðagreiðslu númer tvö hér á landi, eftir öll þessi ár, eftir alla þessa vinnu, eftir að allt stjórnkerfið hefur verið lagað að Evrópusambandinu og flestir reikna með að jafnvel þá, í þeirri atkvæðagreiðslu, verði málið fellt. Til hvers var þá unnið?

Ég held að hæstv. ríkisstjórn gruni þetta og þess vegna er reynt að milda spurninguna til að koma ferlinu af stað. Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu? Rétta spurningin væri: Viltu ganga í Evrópusambandið? Þar með fengjum við raunverulega fram hug þjóðarinnar til málsins strax. Þá gæti almenningur skilið alvöru málsins frá upphafi og farið í að kynna sér forsendur aðildar. Þetta á nú þegar að vera hægt að gera án þess að byrja strax að laga okkur að ESB. Í staðinn förum við blindandi inn í aðlögunarviðræður og ég segi blindandi vegna þess að stjórnvöldum virðist ekki vera það á móti skapi að við rennum hér blint í sjóinn að vissu leyti.

Ég segi það ekki af léttúð heldur vísa ég í ummæli og tvær tilvitnanir frá síðustu vikum. Sú fyrri er í hæstv. forsætisráðherra um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu sem segir, með leyfi forseta: „Fólk þarf ekki allar upplýsingar um hvað að tilheyra Evrópusambandinu endanlega myndi þýða.“ og svo í hæstv. utanríkisráðherra: „Það þarf enginn að gerast sérfræðingur í Evrópusambandinu fyrir 29. ágúst.“

Er ekki eitthvað stórskrýtið við að forystumenn ríkisstjórnarinnar leggi á það sérstaka áherslu að landsmenn kynni sér ekki aðild að Evrópusambandinu áður en þeir kjósa um að sækja um aðild að Evrópusambandinu? Hvað á það að fyrirstilla og hvernig ber öðruvísi að lesa í það en að þessi ríkisstjórn sé einmitt eins og hún margboðar svo að hún sé ekki: hrædd við þjóðina og um að þjóðin afli sér raunverulegra upplýsinga um hvað er verið að fara út í með þessu? Við höfnum þessari nálgun og segjum: Gerumst sérfræðingar. Miðflokkurinn hvetur almenning til að afla sér sérfræðiþekkingar á Evrópusambandinu. Hvað fela aðlögunarviðræður við Evrópusambandið í sér? Hvað felur aðild að Evrópusambandinu í sér? Af hverju að óttast þessar spurningar? Af hverju að óttast þjóðina? Hver er raunverulega staðan í Evrópusambandinu? Um það má margt segja. Staðan hefur farið hríðversnandi á síðustu árum eins og flestir kannast við en reyndar ekki hæstv. forsætisráðherra sem átti þessa góðu línu í hlaðvarpsviðtali á dögunum, spurð út í hnignandi ástand Evrópusambandsins, með leyfi forseta: „Hvað meinarðu þegar þú segir hnignandi?“ Hefur hæstv. forsætisráðherra ekki fylgst með umræðunni um ástandið innan Evrópusambandsins? Af mörgu er að taka. Við getum vikið að samkeppnishæfni Evrópusambandsins sem hefur á undanförnum árum dregist stórlega aftur úr t.d. Kína og Bandaríkjunum. Iðnaður, tækni og nýsköpun bera þess mikil merki. Ef gervigreindarfyrirtæki komast í gegnum kyrkingartak regluverksins eru þau fljót að flytjast til Bandaríkjanna samkvæmt mörgum frásögnum og fréttum og þegar ég nefni gervigreindina nefni ég hana vegna þess að hún er lykilpunktur fyrir framtíðarþróun efnahagskerfisins. Ekki lítur málið vel út á sviði Evrópusambandsins einmitt núna. Hvernig á að bæta úr því? Jú, eina lausnin er meiri samruni, segja menn, ekki minni menn en t.d. Mario Draghi sem skrifaði skýrsluna frægu um þetta hrun í samkeppnishæfni Evrópusambandsins á flestum sviðum. Þar er leiðin fram á við meiri samruni, þ.e. að við getum ekki alltaf verið að bera allar þessar breytingar undir alla. Við verðum bara að geta vaðið áfram. Við þurfum meiri miðstýringu, vera fljótari að taka ákvarðanir, þ.e. meiri samruna í átt að því að Evrópa verði sambandsríki, eins og margir segja fullum fetum. Þannig talar einnig Guy Verhofstadt, maðurinn sem heimsótti landsþing Viðreisnar hérna um árið. Það er maður sem er bókstaflega kallaður Herra Bandaríki Evrópu. Svo þegar Viðreisnarmenn eru spurðir út í þessa hugmynd, að þetta gæti hugsanlega þróast út í sambandsríki, þetta Evrópusamband sem menn vilja fara inn í núna, þá segja þeir: Ja, þessi federalismi er svona hugmynd en það er ekkert mikið gert úr þessu. En þeir fá Herra Bandaríki Evrópu á landsþingið til sín. Þeir eru greinilega ekki feimnari við þessa umræðu um bandaríki Evrópu en svo og tala svo um einhver tengsl annarra stjórnmálaflokka við einhverja vafasama erlenda aðila. Þetta er algerlega brandari.

Annar brandari var hérna á þingi þegar hv. þm. Dagur B. Eggertsson jós út ósannindaóhróðri um andstæðinga Evrópusambandsins en á milli þessa talaði hann um eitt, sem var kyndugt, og það var nýsköpun, að Íslendingar þyrftu að fara inn í Evrópusambandið til að efla nýsköpun. Það er einmitt það sem ég var að lýsa hér, að nýsköpun hefur verið mjög ábótavant innan Evrópusambandsins á sviði tækninnar, á sviði nýsköpunar í stafrænum málum og öðru eins þannig að hengja sig við slíkt af hálfu Íslendinga væri mikið óráð. Ég held nú að hv. þingmaður hafi bara verið að nýta ferðina til að hnýta í undirstöðuatvinnugreinar þjóðarinnar, sjávarútveg og landbúnað, sem ég held að hann missi ekki af tækifæri til að gera. Það breytir því þó ekki að landbúnaður, sjávarútvegur og aðrar greinar eru undirstöðuatvinnugreinar á Íslandi. Við erum matvælaframleiðsluland, við erum auðlindadrifið hagkerfi. Við höfum sérstöðu í orkumálum og þetta eru enn aðrar ástæður fyrir því að við eigum mjög að varast inngöngu inn í Evrópusambandið og halda sjálfstæði okkar frá þeim þegar við horfum á sérstöðu Íslands. Við getum vel skilið að ríki Austur-Evrópu vilji ganga þarna inn en þegar við tölum um Ísland erum við í umtalsvert annarri stöðu.

Annað sem ég nefni í sambandi við Evrópusambandið er stórt mál að mínu mati, þ.e. lýðfræðiþróunin. Evrópusambandið hefur ekki látið sitt eftir liggja í lýðfræðihruni á Vesturlöndum á síðustu áratugum. Fæðingartíðnin er farin veg allrar veraldar og eina lausnin fram á við ef menn vilja halda kerfinu gangandi er einfaldlega opin landamæri og sífellt opnari landamæri. Við Íslendingar eigum að fara í hina áttina, ekki síst á tímum sjálfvirknivæðingar. Þegar við getum raunverulega fetað veg áfram með sjálfvirknivæðingu, aukinni framleiðni og ekki opnum landamærum er Evrópusambandið að stefna þangað inn og þannig tala forystumenn sambandsins. Við hoppum ekki um borð í það sökkvandi skip heldur stöndum við vörð um íslenska þjóð. Við stöndum vörð um íslenskt þjóðríki en förum ekki að villast með það inn í nýtt evrópskt sambandsríki sem orðið getur.

Við nefnum það líka í sambandi við EES-samninginn að þar fóru menn inn á ákveðnum forsendum en svo hafa þær forsendur breyst í áranna rás þannig að hann er alls ekki sami samningur og samið var um upphaflega. Það nákvæmlega sama getur átt við um Evrópusambandið, að jafnvel þótt staðan sé nú þegar slæm þar gæti hún orðið jafnvel verri eftir 20 eða 30 ár. Þá erum við engu að síður komin þarna um borð og höfum séð að það er enginn hægðarleikur að koma sér þaðan út.

Svo eru að lokum lífskjörin nefnd. Hvað segir unga fólkið? Myndi það vilja skipta við Spánverja eða Ítala á sama aldri? Varla. Myndi það vilja búlgörsk lífsgæði eða rúmensk? Ég held að menn myndu ekki einu sinni vilja skipta við Þjóðverja og jafnvel ef við horfum til Norðurlandanna, við Dani eða Svía. Það er ekki einfaldur samanburður og ég held að í flestum tilvikum myndi fólk segja að íslenska leiðin væri best. Hvernig eru launin? Getur ungt fólk fengið vinnu? Getur það lagt hart að sér þótt lífið sé ekki einfalt, fengið vinnu, safnað pening, keypt sér íbúð? Það er ekki einfalt en mögulegt á Íslandi. Hvernig er staðan í þessum sambærilegu Evrópulöndum? Er hún betri eða ekki? Staðreyndin er sú, hvað sem öllu líður, að í Evrópusambandinu eru þau ríki ekki sem eru efst á lífskjaralista (Forseti hringir.) Sameinuðu þjóðanna heldur eru það Ísland, svo Noregur og svo Sviss, (Forseti hringir.) Evrópuþjóðirnar sem standa utan Evrópusambandsins. Ég segi því: Tökum umræðuna um Evrópusambandið. Ég held að maður(Forseti hringir.) endi nú bara aftur á mælendaskrá þar sem mér gefst ekki tími til að fara í nokkra þætti í viðbót.