þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta ágæta svar. Ég ætlaði einnig að koma örlítið meira að samningsmarkmiðunum, hvort hv. þingmaður sé ekki sammála mér í því að ríkisstjórnin verði að setja það á borðið, svo að engum vafa sé undirorpið fyrir þjóðina, fyrir þessa atkvæðagreiðslu í ágúst, hver samningsmarkmið okkar eru, af öllum forystumönnum ríkisstjórnarinnar á sviði sjávarútvegs, á sviði landbúnaðar, á sviði orkuöflunar og virkjana, hver markmið okkar eru í þessum samningum. Ætlum við að sætta okkur við einhverja eftirgjöf eða ekki og hver er sú eftirgjöf, ef menn hafa það í huga? Hvert er álit hv. þingmanns á þessu?
Ég ætla einnig að þakka hv. þingmanni fyrir að benda mér á verndartollana þar sem formaður Viðreisnar, hæstv. utanríkisráðherra, kallaði þessa tolla sem lagðir voru á okkur af Evrópusambandinu ásættanlega niðurstöðu. Ég þakka kærlega fyrir þetta. Þetta leiðir auðvitað enn frekar til þeirrar spurningar sem ég spurði í minni ræðu: Treystir þjóðin hæstv. utanríkisráðherra til að leiða þessar samningaviðræður? Treystir þjóðin Viðreisn sem er forystuflokkur í þessu máli? Hinir flokkarnir eru bara stikkfrí, halda sig frá og koma ekki nálægt því. Þessi flokkur, sem er ekki margra manna, á að leiða þetta. Treystir þjóðin Viðreisn til að leiða þetta algerlega ein og sér þegar litið er til þessara verndartolla og þegar litið er til makrílsamninganna? Hvert er álit hv. þingmanns á þessu?