þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Af því að hv. þingmaður kom inn á fjarveru annarra hæstv. ráðherra og í rauninni fjölmargra stjórnarliða, það hefur held ég einn hv. þingmaður úr Flokki fólksins t.d. flutt hér ræðu af þessu tilefni og það er gott að kjósendur Flokks fólksins viti það að það er þeirra framlag til þessarar umræðu, um þetta risastóra mál eins og það blasir við mér. Og svörin og undanbrögðin, ég fór aðeins yfir það í fyrra andsvari mínu en þeir hafa líka kannski öllu fremur verið bara hreinlega foj þegar þeir eru spurðir. Það var ótrúlegt að fylgjast með hæstv. menntamálaráðherra áðan, Ingu Sæland, eiginlega vísa því á bug, henni fannst það bara helber dónaskapur að vera spurð um afstöðu hennar til þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu.
Ég segi því bara við þá sem tala um að vilja fá að vita meira: Við viljum fá að vita meira. Ég vil fá að vita meira, ég vil fá að vita miklu meira en það sem kemur fram í þessum einblöðungi sem er eiginlega styttri en vikuáætlunin sem ég fæ fyrir börnin mín á hverjum föstudegi, vikuáætlun fyrir næstu viku, þau eru í grunnskóla. Ég vil fá að vita miklu meira og ég vil að þetta sé stafað út fyrir okkur, ekki bara hver einhver samningsmarkmið eru. Ég vil fá að vita hvaða ófrávíkjanlegu skilyrði eru. Við höfum fengið að heyra frasa eins og að við viljum fá góðan samning, að Ísland verði selt dýrt. Það eru bara frasar. Ég vil að þetta sé stafað út nákvæmlega hver þessi ófrávíkjanlegu skilyrði ríkisstjórnarinnar eru og bendi í því samhengi, með leyfi forseta, á samantekt frá Ríkisútvarpi okkar allra, sem hefur nýlega gefið sér stimpil sem óhlutdrægur aðili í þessari umræðu, þar sem stendur með leyfi forseta:
„Samkvæmt úttekt frá 2014 er ekkert fordæmi fyrir varanlegum undanþágum um fiskveiðar fyrir ríki sem sækjast eftir aðild að Evrópusambandinu.“ Þetta er nú bara tekið af heimasíðu Ríkisútvarpsins.