þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Verði niðurstaðan með þjóðaratkvæðinu í sumar já hefst í kjölfarið aðlögun Íslands að öllu regluverki Evrópusambandsins og stjórnsýslu þess. Þetta kemur ekki aðeins fram í öllum gögnum ESB heldur einnig í sjálfri greinargerðinni með þingsályktunartillögunni sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, hefur lagt fram. Hæstv. ráðherra hefur reyndar haldið því fram að hér sé einungis um rólegt kaffispjall að ræða en í þingsályktunartillögunni segir, með leyfi forseta:
„Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum […]“
Það er alveg ljóst að hér er um aðlögunarviðræður að ræða. Því spyr ég, frú forseti: Hvers vegna talar ríkisstjórnin um að kíkja í pakkann þegar þetta eru aðlögunarviðræður? Það stendur í þingsályktunartillögunni.
Það er ekki bara verið að kíkja í pakka heldur væri byrjað að aðlaga og breyta lögum okkar, regluverki og stjórnsýslu samhliða viðræðunum. Í spurt og svarað á vef ESB segir, með leyfi forseta:
„Upptaka og innleiðing regluverksins er grundvöllur viðræðnanna. […] Hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. […] Markmið viðræðnanna er að umsóknarríkið taki upp regluverkið eins og það leggur sig.“
Þetta er spurt og svarað á heimasíðu ESB. Ekkert umsóknarríki hefur fengið varanlegar undanþágur frá regluverki ESB, t.d. með tilliti til landbúnaðar eða sjávarútvegs. Hægt er að semja um aðlögunartíma. Engar varanlegar undanþágur eru frá yfirstjórn ESB, hversu oft sem utanríkisráðherra heldur öðru fram. Fyrri kynslóðir Íslendinga börðust með kjafti og klóm fyrir fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar, mestu gersemum hverrar þjóðar; valdinu til að ráða eigin málum.
Helgi Hallvarðsson og Albert Jónsson, skipstjórar á varðskipum Landhelgisgæslunnar, gátu í krafti þess að Ísland er fullvalda ríki barist gegn ofureflinu með togvíraklippur einar að vopni. Hvað myndu þeir segja við vegferð ríkisstjórnarinnar að framselja fullveldið og sjálfstæði til erlends ríkjasambands? En hvað hafa ríkin í ESB að bjóða okkur? Okkur sem erum ein ríkasta þjóð í Evrópu? Við erum með tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin og fleiri tugi fríverslunarsamninga við ríki um allan heim, bæði á eigin vegum og í gegnum Fríverslunarsamtök Evrópu, EFTA.
Ríkisstjórnin hefur algjörlega gefist upp á efnahagsmálunum, að ná niður vöxtum og verðbólgu og notar nú inngöngu í Evrópusambandið sem einu leið Íslands til að lækka vexti og verðbólgu. En ríkisstjórnin segir það ekki að til að komast inn í myntbandalag Evrópu og taka upp evru þarf ríkisstjórnin sjálf að ná niður vöxtum og verðbólgu. Það gerir ESB ekki fyrir okkur. Evrópa stendur á visnum fótum, hún er ekki samkeppnishæf. Það er efnahagur, varnarmál, mikið atvinnuleysi, orku- og innflytjendamál; allt er þetta í vondum málum í Evrópu. Er það þetta sem við viljum fá í skiptum fyrir framsal fullveldis okkar og sjálfstæðis, auðlinda og gæða? Gera vandamál annarra ríkja að okkar? Já í sumar mun kalla á fulla aðlögun Íslands að regluverki og stjórnsýslu ESB strax. Aðlögun yrði lokið þegar þjóðin fengi að greiða atkvæði um samning sem ekki mun innihalda neitt sem ekki var vitað. Stöndum með Íslandi, stöndum með lýðræðinu og fullveldi og varðveitum það fyrir komandi kynslóðir.