157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:29]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir prýðisræðu. Ég hjó eftir því að í ræðu þingmannsins var, kannski eðlilega, hnykkt á því einu sinni enn, af því að það koma alltaf staðfestingar úr fleiri og fleiri áttum eftir því sem umræðunni vindur fram, að það er ekki um að ræða neinar varanlegar undanþágur frá regluverki Evrópusambandsins. Það kom fleira fram í máli hv. þingmanns, hann vísar til greinargerðarinnar sjálfrar í þingsályktunartillögunni og að þetta séu aðlögunarviðræður. Það er svolítið magnað að hlusta á forystusveit ríkisstjórnarflokkanna tala um einhvers konar kaffisamsæti, eitthvert samningaspjall, þegar þeir hinir sömu settu þetta inn í greinargerðina. Þeir viðurkenna það í greinargerðinni að þetta sé aðlögunarferli. Eins og hún liggur fyrir, og hv. þingmaður vitnaði líka til, þá er þetta staðfest á heimasíðu Evrópusambandsins; þar er nákvæmlega útlistað hvernig þetta fer fram.

Þess vegna langar mig að spyrja hv. þm. Jón Pétur Zimsen hvort það sé ekki, mér liggur við að segja lágmarkskrafa og það er nú eiginlega ekki nálægt því nógu sterkt til orða tekið, að það þurfi þá alla vega að liggja fyrir áður en landsmenn ganga að kjörborðinu viðurkenning af hálfu þessara aðila, þ.e. hæstv. forsætisráðherra, hæstv. utanríkisráðherra og hæstv. ráðherra Ingu Sæland, að svona sé þetta nú. Þess vegna kemur þetta fram á heimasíðu ESB og þess vegna kemur þetta fram í greinargerð þingsályktunartillögunnar, vegna þess að aðlögunarferlið hefst um leið og samtalið byrjar. Spurningin er einföld: Er ekki lágmarkskrafa að þessir hæstv. ráðherrar, sem ég nefndi hér, gangist við þessu áður en þeir ætlast til þess að þjóð þeirra taki afstöðu til málsins?