þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég þakka svörin. Nú veit ég að hv. þm. Jón Pétur Zimsen hefur fylgst lengi með pólitíkinni og verið skólastjórnandi, tekið þátt í samfélagsumræðu og verið öflugur í málefnum er varðar menntamálin, þannig að hv. þingmaður ætti að vera orðinn talsvert sjóaður í að greina hvenær verið er að reyna að keyra á frösum frekar en innihaldi. Í þessu samhengi þá virðist eiga að keyra á því, að mati þess sem hér stendur í það minnsta, að við sem erum andvígir því að þetta fari fram með þessum hætti sem hér er boðað, þ.e. þessari salamíaðferð, nógu litlar og þunnar sneiðar í einu til að þjóðin rísi ekki upp, séum hræddir við þjóðina.
En mig langar að velta vangaveltum mínum upp með hv. þingmanni um hvar hinn raunverulegi ótti hefur alla tíð legið. Ég átti svipuð orðaskipti hér áðan við hv. þm. Njál Trausta Friðbertsson þar sem við nýttum og notuðum sem dæmi ítrekaðar tillögur um að Reykjavíkurflugvöllur og staðsetning hans færi í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það hefur aldrei náðst í gegn, m.a. vegna andstöðu nákvæmlega þessara flokka sem núna kyrja möntruna: Óttist ekki þjóðina.
Mig langar í því samhengi að spyrja: Hverjir eru það raunverulega sem óttast þjóðina? Hverjir hlupust í felur fyrir kosningar með sína stefnu? Ýmist drógu algerlega í land, töldu þetta alls ekki tímabært, það þyrfti mikla sátt meðal flokka á þinginu, í þjóðinni, það þyrfti að koma hlutfalli upp á 70:30 til að það væri marktækt o.s.frv. Aðrir voru mildari, enda í flokki sem var stofnaður eingöngu um þetta mál, og kusu að tjá sig sem minnst.
Þess vegna spyr ég hv. þingmann: Hverjir eru það hér í þessum sal sem eru raunverulega hræddir við þjóð sína?