157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:46]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og ég ætla að byrja á endanum. Hverjir eru kostirnir? Ég svo sem hef ekki séð þá, hugsanlega getur það verið betra veður en ég hugsa að við getum ekki fengið það frá Evrópusambandinu. En þegar horft er á þessar undanþágur sem um er rætt og ég vitnaði til varðandi landbúnaðinn í Finnlandi og Svíþjóð, sem eru fyrir norðan 62. breiddargráðu, þá er það í sjálfu sér bara heimild sem er undir framkvæmdastjórninni komið hverju sinni og samið við heimaríkið, þ.e. Finnland eða Svíþjóð í þessu tilfelli, um þessa heimild. Hún t.d. gilti fyrir Svíþjóð frá 2022–2028 og væntanlega þurfa þeir þá að fara enn og aftur að semja. Það sama var uppi á teningnum með Finna en þá voru það árin 2021–2027. Þetta eru ekki varanlegar heimildir þó að þær séu til lengri tíma.

Hv. þingmaður kom inn á í sinni ræðu það sem kom fyrir Íra varðandi þeirra sjávarútveg og vissulega var þarna heimild sem Írar töldu sig hafa varanlega en framkvæmdastjórnin breytir því síðan. Og miðað við það sem ég hef kynnt mér þá er ekkert til sem heitir varanleg undanþága hjá Evrópusambandinu. Það er ákveðin undanþága með ákveðinni tímalengd en síðan þurfa allir að fylgja þeim reglum og lögum sem eru innan sambandsins.