þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Það er nefnilega rétt hjá hv. þm. Þórarni Inga Péturssyni að það eru engar varanlegar undanþágur. Þess vegna hefur mér þótt skorta í þessari umræðu að við séum að ræða hvað Evrópusambandið er í raun og veru. Ég vil bara vekja athygli á því að hér í þingsal núna er enginn fulltrúi frá meiri hlutanum, enginn. Við erum að ræða þeirra stærsta mál. Þetta er rætt, eins og hefur komið fram, allt undir einhverju yfirskini um að við séum að kíkja í pakkann — sem er ekki rétt. Þess vegna þurfum við að ræða hvað ESB er í þessari fyrri umræðu að mínu mati, til þess að við getum fengið betri umsagnir, það verði betri gestakomur milli umræðna til þess að við komumst að því, og þjóðin, um hvað þetta snýst í raun og veru.
Fyrr í dag hlustaði ég á hæstv. forsætisráðherra svara í engu spurningum sem hún var ítrekað spurð. Hún var spurð að því ef þjóðin segir já hvort við munum þá þurfa að byrja að aðlagast Evrópusambandinu. Hún kom sér undan að svara. Ég hef tekið eftir því að Morgunblaðið hefur bent á þetta líka, að hún hafi komið sér undan að svara því hjá þeim. Þetta þykir mér ekki heiðarlegt. Mér þykir þetta merki um að það eigi að keyra þetta áfram með blekkingum og meiri hlutinn hélt að þau gætu keyrt þetta áfram bara með einni setningu: Við treystum þjóðinni. Mín seinni spurning er þess vegna: Þurfum við ekki að fá að vita hvað Evrópusambandið er til að geta kosið í ágúst? Eða er hv. þingmaður sammála því að við getum bara kosið um það að kíkja í pakkann?