þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir hans afar fínu ræðu þótt stutt væri af því að seinni ræða okkar þingmanna hér er bara fimm mínútur. Í þessu risastóra máli höfum við tíu mínútur og fimm mínútur til þess að ræða þetta mál í fyrri umræðu. Nú er það alveg ljóst að það er ekki Evrópusambandið eða atkvæðagreiðsla um Evrópusambandið sem hvílir á þjóðinni í dag. Það sem hvílir á heimilunum í landinu í dag, almenningi, fyrirtækjunum, er algjört skipbrot núverandi ríkisstjórnar í efnahagsmálum, algjört skipbrot. Efnahagsmistök á efnahagsmistök ofan. Skattahækkanir og annað sem hafa keyrt upp verðbólguna hafa ekki bara þyngt byrðar heimilanna heldur eru núna að rýra kaupmátt fólks með hækkandi verðbólgu. Nú er vaxtaákvörðunardagur á miðvikudaginn og ekki eru vextir að fara að lækka í þessu árferði og margt sem bendir því miður til þess að vextir gætu jafnvel hækkað. Þetta er það sem fólkið í landinu er að hugsa um þessa dagana. Það er ekki að velta fyrir sér hvort við eigum að fara í Evrópusambandið. En það er einn rúmlega 10% flokkur á þingi sem keyrir þetta mál áfram og hinir flokkarnir fylgja á eftir.
Mig langar að spyrja hv. þingmann: Hefur hann sömu tilfinningu og ég að hér sé bara um algera uppgjöf að ræða í efnahagsstjórn landsins? Það sé í rauninni verið að nota þetta sem pólitískt útspil til að beina athyglinni og kastljósinu frá því ástandi sem ríkir í samfélaginu og þeim verkefnum sem fram undan eru og verið að kljúfa þjóðina hér í einhverju Evrópusambandstali?