157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:13]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir hans fyrra svar. Það er alveg greinilegt að við sjáum hvernig þessi hrossakaup hafa lagst hérna upp. Núna er hæstv. innviðaráðherra sem út af enn einu mixinu situr uppi með það að ákveða byggðakvóta í landinu af því að hæstv. atvinnuvegaráðherra vildi ekki taka þátt í þessu „skuespili“ sem er í kringum byggðakvótana. Nú er verið að leggja af línuívilnun. Það er verið að leggja af rækju- og skelbætur sem mun líklega verða til þess að vinnsla gæti lagst af í ákveðnum plássum. Allt er þetta gert til þess að viðhalda hér loforði Flokks fólksins. Við erum síðan með launavísitöluna og við erum búin að fá grásleppuna. Við sjáum hrossakaupin. Nú er kapallinn allur að leggjast, þessi þrjú ömurlegu mál eru hér að leggjast upp. Þetta er það sem kostaði að fá Flokk fólksins til þess að samþykkja þessa vegferð, þá þurftu þessi þrjú mál að fara í gegn. Enda gengu hér hv. þingmenn Samfylkingarinnar og Viðreisnar hljóðir um gangana og vildu helst bara að vera á fundum einhvers staðar, helst í öðrum löndum, meðan verið væri að ræða þessi mál; þeir skömmuðust sín svo mikið fyrir þetta. Við sjáum hvernig þetta er að leggjast upp, hvað það kostaði m.a. að setja hér risastóra útgjaldaliði á sjálfstýringu til að koma þessu máli Viðreisnar inn. Hvað Samfylkingin fær út úr þessu veit ég ekki. Átti það að vera glæst efnahagsstjórn landsins og plön sem líta út eins og einhverjir sovéskir efnahagspakkar og fimm ára áætlanir sem ekkert mark er takandi á? Alltaf sökkvum við dýpra og dýpra í verðbólgu og atvinnuleysi, enda eru þetta líka bara vinstri menn. Það kemur ekkert annað úr vinstri áttinni heldur en slæmar hugmyndir um efnahagsstjórn landa.

Mig langar að spyrja hv. þingmann: Er hann ekki sammála því að svona hafi þessi hrossakaup gengið fyrir sig hér á undan?