þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Ég get auðvitað haft mínar tilfinningar um það hvernig kaupin á eyrinni ganga fyrir sig en ég get hins vegar ekki fullyrt það hafandi ekki verið staddur á eyrinni þegar viðskiptin fóru fram. Ég get þó í ljósi þess sem hv. þingmaður nefndi hér er varðar t.d. línuívilnun og rækju- og skelbæturnar auk skattahækkana sem þurfti til að keyra ákveðna málaflokka hér áfram — og þetta tvennt sem ég var að nefna núna, þessar skattahækkanir annars vegar og hins vegar línuívilnun og rækju- og skelbætur og allar þær breytingar sem hafa verið boðaðar varðandi 5,3% pottinn til að uppfylla þar einhver loforð sem ég held að hæstv. atvinnuvegaráðherra hafi á þeim tíma verið búinn að átta sig á að það væri þvílíkur kaleikur að halda á. Ég held að það hafi örugglega verið gott í matinn hjá hæstv. atvinnuvegaráðherra þegar hann losnaði við þann málaflokk yfir til Flokks fólksins enda var hann svo sem ættaður þaðan. En til að halda svona skútu sæmilega ballanseraðri þá getur náttúrlega ekki gengið upp til lengdar að þriðjungur áhafnarinnar fái hér um bil allt í gegn sem hún vill og einn þriðji verði eftir, sem er þá, í þessari myndlíkingu, Viðreisn sem situr eftir. Flokkur fólksins fékk endalausar skattahækkanir í gegn sem ég hygg að hafi valdið andvökunóttum hjá mörgum sem lögðu atkvæði sitt í Viðreisnarkassann. Svona virkar þetta, held ég, af því hv. þingmaður spurði hvað ég held, ekki hvað ég veit. Þá sat hæstv. forsætisráðherra uppi með það að hann varð að halda ballans á skútunni. Það varð að gefa eftir í máli sem hæstv. forsætisráðherra var afar skýr í allri kosningabaráttunni að væri ekki á dagskrá strax og það kæmi ekki til greina að kljúfa þjóðina; þetta yrði að vera afgerandi, herra forseti, bæði hér inni á þingi og meðal þjóðarinnar. (Forseti hringir.)
Herra forseti. Bæði hæstv. forseta til upplýsingar sem og þingheimi öllum hér: Þau miklu vatnaskil hafa ekki átt sér stað enn þá. Það eru ekkert afar ljós skil, það er ekkert 70:30 í kortunum. (Forseti hringir.) Nei, það er í besta falli — og fyrirgefðu tímann, herra forseti — nálægt 50% í bestu mælingunum.