157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:18]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S):

Virðulegi forseti. Ég vil í upphafi ræðu minnar þakka þingheimi fyrir ágætar umræður sem og þeim stjórnarliðum sem hafa tekið þátt í skoðanaskiptum hér í þingsal. Það er afar mikilvægt enda málið risastórt, hugsanlega það stærsta á pólitískum ferli hæstv. utanríkisráðherra. Því skiptir auðvitað mjög miklu máli að við vöndum til verka öll sem að þessu máli koma. Þessi spurning og þessi vegferð sem miðar að því að koma okkur inn í Evrópusambandið, eða hefja þá vegferð, er auðvitað þess eðlis að það eru kostir og gallar við aðild að Evrópusambandinu, því er ekki hægt að leyna og um það er eðlilegt að við eigum í hreinskiptum skoðanaskiptum. Þar geta þessi pólitísku skoðanaskipti legið: Er hagsmunum Íslands betur borgið innan eða utan Evrópusambandsins með öllu því sem því fylgir? Á endanum snýst þetta allt saman um það.

Hér erum við að ræða þingsályktunartillögu hæstv. utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég tel rétt í upphafi málsins að fara yfir kjarnaatriði þeirrar tillögu sem slíkrar. Þar er auðvitað fyrst að nefna spurninguna sjálfa. Einhverjum kann að finnast þetta leiðinlegt, jafnvel utan kjarna málsins, en það er engu að síður mjög mikilvægt. Þá er fyrst rétt að fjalla um spurninguna sjálfa. Hún er nokkuð sérstök. Ég er raunar þeirrar skoðunar hreinlega og því miður að hún sé leiðandi. Ég vil síður ganga svo langt að halda því fram að hún sé villandi en hún er leiðandi. Þarna er það lagt upp hvort halda eigi áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Það er enginn ágreiningur um það hér í þingsal. Staðreynd málsins er auðvitað sú að þeim var lokið fyrir rúmum áratug. Því væri að mínu viti réttara að orða spurninguna með þeim hætti sem hv. þm. Flokks fólksins, Sigurður Helgi Pálmason, sagði hér í þingsal; að málið væri ekki svo flókið í grundvallaratriðum, það væri verið að spyrja hvort hefja eigi viðræðurnar að nýju. Það er miklu nákvæmari spurning og fangar það sem við erum raunverulega að gera. Við erum ekki að halda áfram einhverju samtali sem lauk fyrir 13 árum. Það má ræða um það hvort spyrja eigi þjóðina hvort hefja eigi viðræðurnar að nýju. Þetta skiptir máli og er auðvitað atriði sem utanríkismálanefnd þarf að skoða sérstaklega.

Ég er reyndar sjálfur hissa á því að utanríkisráðuneytið hafi ekki á fyrri stigum gætt einmitt að efni spurningarinnar sjálfrar. Það er lögboðið í kosningalögum að leita skuli umsagnar landskjörstjórnar, þar með talið um spurninguna sjálfa. Ég geri þá ráð fyrir því að utanríkismálanefnd muni afla slíkrar umsagnar. Þetta er vandmeðfarið og við viljum auðvitað öll að þetta sé vel gert. Það er atriði númer eitt. Í því sambandi, og í vinnu utanríkismálanefndar, tel ég líka að það væri skynsamlegt að afla álits Feneyjanefndarinnar á spurningunni sjálfri. Þetta er svona fyrsta atriðið. Það hefði kannski verið hægt að afgreiða það mun fyrr ef ríkisstjórnin hefði fylgt samþykkt um vandaða meðferð frumvarpa og þingsályktunartillagna sem gerir ráð fyrir því að mál eins og þetta, þingsályktunartillaga, sé lagt inn í samráðsgáttina. Það er fyrsti snertiflötur ríkisstjórnarinnar við borgarana í landinu. Ég fæ ekki skilið af hverju það var ekki gert, af hverju þessari skyldu var ekki fylgt að leggja málið inn í samráðsgátt þannig að borgarar landsins geti komið að málinu, kjósendur, sem við í minni hlutanum erum vænd um að treysta ekki. Þetta er þeirra vettvangur til þess að eiga beina aðkomu að málinu strax í upphafi. Einhverra hluta vegna var málinu markaður þessi farvegur einmitt, held ég, vegna þess að þeir sem héldu á málum vildu ekki fá fram sjónarmið almennings áður en til þinglegrar meðferðar kæmi.

Að lokum — og ég sé að tími minn líður eins og skot — þá er það dagsetningin sjálf. Ég held að við sjáum það öll, og því hefur verið teflt fram, að þessi dagsetning hafi verið valin, lok ágúst, einmitt vegna þess að Alþingi er ekki að störfum þá, reyndar undir því yfirskini að þá muni þetta ekki tefja fyrir fjárlagavinnu eða öðru slíku í þinginu. Ég gef lítið fyrir slík sjónarmið. Ég tel að það sé skynsamlegra að dagsetningunni yrði frestað, hvort heldur sem það væri í lok september eða byrjun október. Ég tel það miklu skynsamlegra. Ég held að það sé eðlilegt að þingið sé að störfum þegar jafn stórt mál eins og þetta er uppi. Við erum með lýðræðislega kjörið þjóðþing hvort heldur sem ríkisstjórninni líkar það betur eða verr. Hér eigum við í skoðanaskiptum og hér verða ráðherrarnir að mæta og svara spurningum stjórnarandstöðunnar og standa skil gjörða sinna. Því er eðlilegt að í jafn stóru máli líkt og þessu að Alþingi sé að störfum.

Þetta eru þessi tæknilegu atriði er varða þingsályktunartillöguna sjálfa. Ég legg áherslu á að við vöndum umræðuna. Því miður er ég þeirrar skoðunar að svo hafi ekki verið. Auðvitað er hægt að bæta úr því. En við sem komum að þessum málum, hvort heldur sem er í minni hluta eða meiri hluta, eigum að vanda okkur. Þar skiptir auðvitað mestu að eiga í hreinskiptnum skoðanaskiptum um málið sjálft, m.a. hvað það þýði að segja já eða nei í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu. Þá er auðvitað fyrsta atriðið að hugsa um það og það er þá ríkisstjórnarinnar og stjórnarmeirihlutans að gera grein fyrir því hvað gerist í kjölfarið. Þá vil ég í því sambandi nefna nefndarálit meiri hluta utanríkismálanefndar frá árinu 2009; vinnan þar var mjög ítarleg og ég vænti þess að utanríkismálanefnd þessa þings muni vanda sig með sama hætti. Þar segir, með leyfi forseta:

„Sú breyting hefur orðið á stækkunarviðræðum að sérstök áhersla er nú lögð á að ríki hafi í raun uppfyllt tiltekin viðmið varðandi hvern og einn kafla áður en samningar um þá eru opnaðir og einnig áður en þeim er lokað. Í þessu felst að sem minnst er gefið af frestum til að uppfylla skilyrðin áður en köflum er lokað heldur er þeim ekki lokað fyrr en ákveðnum markmiðum er náð í framkvæmd og með innleiðingu löggjafar í viðkomandi ríki. Slíkt er að sjálfsögðu óháð þeim aðlögunartíma og undanþágum sem kann að semjast um.“

Þá er auðvitað rétt að spyrja: Hefur þetta eitthvað breyst? Hvað liggur fyrir um það? Ekki nokkur skapaður hlutur. Þá er ég að vísa til þess að strax í upphafi, ef við hefjum þessa vegferð, þá felst hún í akkúrat þessari aðlögun. Það er ábyrgðarhluti.

Ég sé því miður að tíma mínum er að ljúka. Það er erfitt að fara tæpa á einhverju á þessum 20 sekúndum sem ég á hér eftir. Ég hvet þingheim, og þá sérstaklega þá sem eru í forsvari fyrir þessa ríkisstjórn, til þess að vanda umræðuna; eiga í hreinskiptnum skoðanaskiptum, upplýsa kjósendur, hvort heldur sem er í aðdraganda þess að við afgreiðum þetta mál eða þegar og ef það kemur að þessari þjóðaratkvæðagreiðslu, sem ég tel að séu allar líkur á, og að upplýsingaskipti séu skýr og hreinskilin.