157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:46]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Þetta er eitt af því sem er slík ótrúleg ósvífni eins og hv. þingmaður var að vísa til. Nú hljómar það vel til að setja inn í einhverjar sviðsmyndir eða einhverja narratífu að við séum búin að taka upp 80% af öllu reglugerðafarganinu í gegnum EES-samninginn. Einhver kynni þá að segja: Bíddu, af hverju erum við þá að standa í þessu? Ykkur langar svona í Evrópusambandið en þetta er hvort eð er komið í 80%, slakið á, verið ekki með neitt vesen. En það er ekkert á bak við þetta. Þetta er bara tóm þvæla. En þeir ætla að halda línunni. Svo ertu bara með suma fjölmiðla sem ganga ekkert á viðkomandi stjórnmálamenn og spyrja hvaðan þeir hafi þetta, hvaðan þessi 80% koma. Að vísu kom hv. þm. Dagur B. Eggertsson og sagði 75% af því að hann hafði hlustað á hlaðvarp þar sem einhver aðili sagði það. Hv. þingmaður spyr hver sé hugmyndin og vísar til þess líka hvernig menn ætli að fara í gegnum þetta. Ég átta mig ekki á því. Ég man vel eftir því þegar þessi fyrri vegferð var farin. Ég man eftir því þegar það rann upp fyrir þáverandi hv. stjórnarliðum hvað í rauninni var í gangi. Ég man líka að það var ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sem hætti þessu og kláraði aldrei neitt af þeim köflum — ekki bara um sjávarútveginn heldur bara ekkert af þessum köflum sem skipta máli vegna þess að þau þorðu ekki að sýna þjóðinni það. Og af því að hv. þingmaður spyr varðandi þessi skilyrði og það sem hæstv. utanríkisráðherra vísaði til: Af hverju svarar þá hæstv. utanríkisráðherra því ekki skýrt hvort hún sé að meina að við séum inni í sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni eða ekki? Það kemur ekkert svar við því. Ég hef mestar áhyggjur af því vegna þess að allar þær þjóðir, af því að ég er að hugsa um hvernig ríkisstjórnin ætlar að vinna úr þessu, sem hafa farið inn í Evrópusambandið, nær allar, ef við sleppum Kola- og stálbandalaginu en jú, það á svo sem við þær líka, hafa farið inn í Evrópusambandið með svolítið lágt sjálfstraust, (Forseti hringir.) það hefur ekki gengið vel. Það er sannarlega þannig með þessa ríkisstjórn núna, viljandi eða óviljandi, hún er ekki að standa sig þegar kemur að efnahagsmálum og því lengra sem líður á kjörtímabil þessarar ríkisstjórnar (Forseti hringir.) því verri verður staðan í efnahagsmálum. Kannski er það áætlunin til að koma okkur inn, að menn segi bara: Við viljum bara eitthvað í staðinn fyrir þetta.