157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:00]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Það sætir mikilli furðu að ríkisstjórn Íslands skuli leitast við að nota tækifærið nú þegar er ákveðin ólga í alþjóðamálum í öðrum heimshlutum og grípa það fegins hendi sem tækifæri til að reyna að koma Íslandi inn í Evrópusambandið, en gera það með þeim hætti sem hv. þingmaður lýsti. Á sama tíma og við erum með þennan einstaka tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin þar sem sérstaklega er tekið fram að Bandaríkin muni í engu skipta sér af innanríkismálum á Íslandi, þá eigi að líta fram hjá því og fara að horfa í átt að Evrópusambandinu sem alla sína tíð hefur reynst algerlega vonlaust í varnarmálum eins og reyndar mörgu öðru. Þá er bent á að Evrópusambandið sé með einhverjar hugmyndir um að gera breytingu þar á og jafnvel koma á sameiginlegum her. En þegar minnt er á það þá má ekki einu sinni tala um það af því að það er mjög mikilvægt að mati hæstv. ráðherra að sem minnst umræða eigi sér stað um málið. Hver dúkkar þá upp nema forsætisráðherra Spánar, leiðtogi sósíalistastjórnarinnar sem íslensk stjórnvöld hafa því miður verið í óhóflegu samkrulli með að undanförnu og væntanlega ekki glatt dyggustu bandamenn okkar vestan hafs. Hann segir að það þurfi sameiginlegan evrópskan her sem fyrst. Þegar íslenskum ráðherrum er bent á þessa staðreynd og þeir spurðir spurningarinnar: Hvort viltu frekar að við treystum á varnir öflugasta herveldis heims, Bandaríkjanna, eða að við förum að senda unga Íslendinga í einhvern sameiginlegan evrópskan her? (Forseti hringir.) Þá verða menn reiðir. Ég tel, frú forseti, að það sé vegna þess að þeir óttast staðreyndir. En hvernig skýrir hv. þingmaður það?