157. löggjafarþing — 82. fundur,  16. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:05]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Nei, það er kannski ekki líklegt að belgíski herinn komi og bjargi Íslendingum ef í harðbakkann slær hér á norðurslóðum. En að mínu mati er ástæðan fyrir því að hæstv. ríkisstjórn og ráðherrar hennar vilja ekki ræða varnarmálin sú sama og ástæðan fyrir því að þau vilja ekki ræða neitt annað sem varðar aðild að Evrópusambandinu; öll þessi vegferð, svo ég noti nú hugtak svona úr vinstri átt, gengur út á að umræðan verði sem minnst. Það er mín skoðun. Hv. þingmaður getur leiðrétt mig ef hann svo kýs. En ég ætla að varpa þessari skoðun hér fram gagnvart hv. þingmanni. Ég tel að það sama eigi við á öllum sviðum Evrópusambandsins. Ríkisstjórnin vilji ekki umræðu af því að öll umræða, upplýsingar, það að fólk átti sig á því út á hvað þetta raunverulega gengur, ég tala nú ekki um hvernig ferlið gengur fyrir sig ef ríkið sækir um aðild að Evrópusambandinu — það telja þau skaðlegt fyrir sinn málstað. Þess vegna þurfa þau að keyra þetta í gegnum þingið án þess að setja málið í samráðsgátt stjórnvalda, ryðja öllu öðru úr vegi, keyra þetta hratt í gegn og láta fólk kjósa í sumar þannig að menn hafi sem minnstan tíma og sem minnst svigrúm til að kynna sér raunveruleikann. Þetta er fullyrðing sem ég legg undir hv. þingmann. Þessi vegferð, þessi blekkingarleikur er til þess hannaður að fela innihaldið, fela raunveruleikann fyrir almenningi. Mér finnst það ótækt að meira að segja hæstv. forsætisráðherra landsins skuli gera sér það upp að hann sé bara forvitinn um hvað felist í aðild að Evrópusambandinu og neiti að svara einfaldri spurningu um það sem allir mega vita svarið við, hvort umsóknarferlið feli strax í sér aðlögun.