þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég held að það sé óhætt að upplýsa hæstv. forsætisráðherra um það, ef hún er ekki með það á hreinu, að þegar þú hefur svokallaðar aðildarviðræður þá eru þetta aðlögunarviðræður og þá hefjast þær strax. Þannig er það og það er bara þannig. Það er enginn munur þar á. Það er kannski vandamálið því að nú heyrir maður að nýjasta mantran sem tönnlast er á aftur og aftur í umræðunni, er: Við viljum bara vita meira. Þau eru hætt að tala um að kíkja í pakkann. Við viljum bara vita meira. Þetta les maður í öllum ræðum og viðtölum. Við þurfum bara að vita meira. Bíddu, erum við að fara í einhverjar kosningar í ágúst án þess að vita nokkurn skapaðan hlut? Er það það sem þetta gengur út á? Erum við bara eins og blindir kettlingar hér? Vitum ekki neitt en ætlum að vita meira? Það er náttúrlega akkúrat það sem hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var að segja, það á einhvern veginn að spila þetta þannig. Ja, viljum við ekki vita meira? Vitum við sem sagt ekki neitt? Það á ekki að setja neitt á borðið fyrir framan fólk. Þjóðin á ekki að fá neinar upplýsingar, ekkert sem upplýsir í rauninni þjóðina um það hvað við erum raunverulega að fara að kjósa um. Við erum hér með uppgefna ríkisstjórn sem er komin með efnahagsmálin í skrall, vill að við séum að ræða Evrópusambandið, er uppgefin á verkefninu, er búin að gefast upp, kasta inn handklæðinu. Þá er best að fara að ræða Evrópusambandið sem menn vita greinilega eiginlega ekkert um og hvernig þetta gengur fyrir sig. Þá er slagorðið búið til einhvers staðar. Nú hömrum við á þessu, þetta hljómar vel: Við viljum bara fá að vita meira. Svo er bara svarað með skætingi í fjölmiðlum. Ef fjölmiðlar vilja fá að vita meira um hvað eiginlega standi til þá er bara svarað með skætingi og hortugheitum. Hvernig getum við ætlað að ganga til kosninga (Forseti hringir.) 29. ágúst með þetta fyrir framan okkur? Ég bara spyr.