þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni kærlega fyrir sína ræðu. Það er yfir allan vafa hafið að hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er andvígur aðild Íslands að Evrópusambandinu, alveg eins og það er yfir allan vafa hafið að sá sem hér stendur er hlynntur aðild Íslands að Evrópusambandinu. Það er hins vegar ekki það sem þessi tiltekna þingsályktunartillaga snýst um heldur það að fela þjóðinni að greiða um þetta atkvæði. Ég hef oft verið spurður og fleiri þingmenn stjórnarmeirihlutans hvort við munum virða það ef það kemur nei út úr þessari þjóðaratkvæðagreiðslu. Það hefur verið nokkuð skýrt svar. Ég mun að sjálfsögðu virða það ef það kemur nei og þá er þetta mál frá, alla vega í kynslóð eða svo eins og oft er talað um í samhengi við þjóðaratkvæðagreiðslu. Það sem ég vil spyrja hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson og formann Miðflokksins er: Mun hann virða útkomu þjóðaratkvæðagreiðslunnar ef svarið er já?